„Kemur það til greina að hefja undirbúning að því að sækja um strax núna eftir kosningar?“ spurði Sigmar Guðmundsson, núverandi þingmaður Viðreisnar og þáverandi fréttamaður Ríkisútvarpsins, Steingrím J. Sigfússon, sem þá var formaður Vinstri-grænna, daginn fyrir þingkosningar 2009 og vísaði þar til inngöngu í Evrópusambandið. Steingrímur neitaði því ítrekað: „Nei, nei, nei.“ Slíkt kæmi ekki til greina enda gegn stefnu flokksins og yrði hafnað af stofnunum hans.
„Það samrýmist ekki okkar stefnu og við hefðum ekkert umboð til slíks og þó við reyndum að leggja það til forystufólkið í flokknum að það yrði farið strax í aðildarviðræður gagnstætt okkar stefnu í maí þá yrði þá fellt í flokksráði Vinstri grænna,“ sagði Steingrímur enn fremur. Um hálfum mánuði síðar hafði Steingrímur samþykkt í stjórnarmyndunarviðræðum við Samfylkinguna að þingsályktunartillaga um umsókn yrði lögð fram sem síðan var studd af flokki hans.
Viss kaldhæðni felst í því að Sigmar skuli nú vera í ekki ósvipaðri stöðu. Flokkur hans, Viðreisn, forðaðist sem kunnugt er að ræða um Evrópusambandið fyrir þingkosningarnar í lok nóvember. Samhliða því jókst fylgi flokksins. Forysta Viðreisnar sló í og úr þegar hún var spurð um það hvort flokkurinn myndi leggja áherzlu á skref í átt að inngöngu í sambandið í mögulegum stjórnarmyndunarviðræðum. Hvað Samfylkinguna varðar minntist flokkurinn alls ekkert á málið.
Flokkur fólksins er enn frekar í svipaðri stöðu. Flokkurinn sagðist andvígur því að gengið yrði í Evrópusambandið fyrir kosningarnar og að tekin yrðu skref í þá átt með þjóðaratkvæði í þeim tilgangi en samþykkti slíka atkvæðagreiðslu síðan í stjórnarmyndunarviðræðunum. „Nei, nei, nei,“ voru einnig svör hans fyrir kosningar. Aðstæður voru annars ekki heppilegar til þess að setja málið á dagskrá 2009 enda steytti það loks á skeri. Aðstæðurnar eru þó enn verri nú.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Steingrímur J. Sigfússon. Eigandi: Magnus Fröderberg/norden.org)
