„Múturnar hafa hækkað svo mikið“

Fjallað var um það í erlendum fjölmiðlum, þegar átökin á Gaza stóðu sem hæst, að tvær leiðir væru færar fyrir Palestínumenn til þess að komast þaðan og yfir til Egyptalands um landamærin í borginni Rafah. Sækja um brottfararleyfi og vonast eftir samþykki egypskra stjórnvalda, sem tæki mjög langan tíma, eða greiða svokallað ferðasamhæfingargjald (e. travel co-ordination fee) til einkafyrirtækja sem tækju slíkt að sér. Til að mynda hafði kanadíska ríkisútvarpið CBC þetta eftir Ahmed Benchemsi, talsmanni mannréttindasamtakanna Human Rights Watch í apríl 2024.

„Samkvæmt skýrslu frá Samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) frá árinu 2018 er brottför fólks um Rafah „ruglingsleg og óljós“ vegna tveggja aðferða. Annars vegar opinbera rafræna ferlið, sem innanríkisráðuneyti svæðisins stýrir. Og hins vegar listi sem egypsk yfirvöld samstilla. Í skýrslunni er varað við mútugreiðslum í Gaza og Egyptalandi til að tryggja ferðalög og hraðari viðbrögð í málum sem afgreidd eru í gegnum seinni leiðina,“ segir í frétt spænska dagblaðsins El País 1. febrúar 2024 en slík starfsemi hefur verið stunduð um árabil.

„Það er óljóst hvernig ferlið gengur fyrir sig og hvernig milliliðir á Gaza koma þeim sem greiða yfir landamærin. Hins vegar sýnir sameiginleg rannsókn egypska fjölmiðlafyrirtækisins Saheeh Masr og alþjóðlegs nets rannsóknarblaðamanna hjá Organized Crime and Corruption Reporting Project (OCCRP), byggð á meira en tylft viðtala, að það hversu hratt sé hægt að fá grænt ljós frá egypsku öryggisþjónustunni sem stjórni landamærunum gefi tilefni til ásakana um að mútugreiðslur séu að smyrja kerfið,“ segir enn fremur í fréttinni. Sú leið tæki aðeins fáeina daga en hin vikur eða mánuði.

„Þetta er í raun mjög óreiðukennt ástand sem opið er fyrir misnotkun,“ sagði Amr Magdi, rannsóknastjóri hjá Human Rights Watch, í samtali við bandarísku sjónvarpsstöðina NBC 2. maí 2024 um stöðuna á landamærum Gaza og Egyptalands en hann sérhæfir sig í stjórnarháttum og mannréttindum í Mið-Austurlöndum. Jafnvel þótt fleirum tækist að afla sér nægjanlegs fjár til að fara yfir landamærin væri fjöldi þeirra sem fengju leyfi til þess enn aðeins brot af þeim sem vildu flýja átökin, sagði hann. „Hlutirnir hafa orðið erfiðari og peningarnir, múturnar, hafa hækkað svo mikið.“

Fjölmargar aðrar fréttir og gögn fjalla um það að einungis tvær leiðir séu færar, bíða vikum eða mánuðum saman eða greiða mútur. Vandséð er þannig að hægt sé að draga aðra ályktun en þá að þær greiðslur sem inntar voru af hendi af samtökunum Solaris 2024 til slíkra einkafyrirtækja til þess að koma hópi fólks um Rafah til Egyptalands hafi falið í sér það sem til að mynda Sameinuðu þjóðirnar og Human Rights Watch skilgreina sem mútur. Nema Solaris hafi einhvern veginn tekizt að finna þriðju leiðina og greitt háar fjárhæðir með sama hætti og aðrir án þess að sú væri raunin.

Fyrr í vikunni greindi Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, frá því að henni hefði borizt stefna frá Helgu Völu Helgadóttur, lögmanni og fyrrverandi þingmanni Samfylkingarinnar, fyrir hönd Solaris fyrir meint meiðyrði í þættinum Spursmál á mbl.is síðasta haust. Vísað var þar einkum til þeirra orða Guðrúnar að hún teldi að greiðslur samtakanna hefðu falið í sér mútur. Eins og rakið hefur verið hér að framan er hins vegar ekki nóg með að Sameinuðu þjóðirnar og Human Rights Watch telji slíkar greiðslur mútur heldur hafa þau beinlínis sagt það berum orðum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Frá landamærastöðinni í Rafah. Eigandi: Gigi Ibrahim – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)