Hversu oft höfum við fengið að heyra frasann frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um að hún treysti þjóðinni varðandi Evrópusambandið þó fátt bendi til þess að svo sé í raun. Veruleikinn er enda sá að þar hefur hún ekki átt við það að hún treysti fólki til þess að taka eigin ákvörðun í þeim efnum heldur að greiða atkvæði í samræmi við hennar óskir.
Til að mynda hafði fréttavefurinn Politico þannig eftir henni 17. júlí á síðasta ári að hún „treysti íslenzku þjóðinni til þess að ákveða að halda áfram“ umsóknarferlinu að Evrópusambandinu. Skoðanakannanir höfðu þá sýnt mun fleiri hlynnta því að halda ferlinu áfram en andvíga. Síðan hefur stuðningur við það minnkað sem hefur endurspeglast í orðum hennar.
Talsvert annað hljóð var þannig til að mynda í Þorgerði í samtali við fréttavefinn Euronews 19. marz síðastliðinn þar sem hún var spurð hvort ekki væri á brattann að sækja fyrir stjórnvöld í kosningabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðið í lok sumars. Sagði hún að treysta yrði þjóðinni. Ekki þó til þess að taka eigin ákvörðun heldur að samþykkja áframhaldandi unsóknarferli.
„Þetta verður ekki auðveld vegferð en að lokum verður maður að treysta þjóðinni og trúa á hana. Þetta er frekar jákvætt núna. Niðurstaðan gæti verið jákvæð núna, í dag ef við myndum kjósa. Á hinn bóginn… þú veizt…“ sagði Þorgerður og skipti svo um umræðuefni. Hún sem sagt treystir þjóðinni mögulega til þess að kjósa „rétt“ núna en hins vegar ljóslega ekki síðar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)

