Formaður VG opinn fyrir inngöngu í ESB

Fyrr á árinu fékk Vinstrihreyfingin – grænt framboð nýjan formann, Rósu Björk Brynjólfsdóttur. Hún var meðal annars spurð í viðtali í Heimildinni í dag um afstöðu hennar til inngöngu í Evrópusambandið en vildi ekki svara því afdráttarlaust hvar hún stæði persónulega í þeim efnum að því er segir í blaðinu. Þess í stað vildi hún leggja áherzlu á að flokkurinn tæki „raunverulega umræðu um Evrópumálin og alþjóðamál, enda hafi alþjóðasviðið tekið miklum breytingum.“

Fram kemur í inngangi viðtalsins að í Evrópumálum standi Rósa Björk á „viðkvæmum stað.“ Hún hefði þannig á sínum tíma gengið úr Vinstri grænum og til liðs við Samfylkinguna sem væri yfirlýstur Evrópusambandsflokkur en leiddi nú flokk sem væri á móti inngöngu í Evrópusambandið. Haft er eftir henni að stefna Vinstri grænna væri óbreytt í þessum efnum frá síðasta landsfundi flokksins en hún vildi sjálf auka samvinnu við sambandið og hin Norðurlöndin.

Við þetta má bæta að Rósa Björk gekk til liðs við Samfylkinguna árið 2020 þegar Logi Már Einarsson var enn formaður flokksins, sú stefna að ganga í Evrópusambandið í forgrunni þar á bæ og lögð rík áherzla á hana fyrir þingkosningarnar haustið 2021. Í aðdraganda þeirra gaf Rósa Björk kost á sér til þess að leiða Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi, meðal annars undir merkjum þeirrar stefnu sem hún hafði ljóslega ekkert út á að setja, en varð þar undir.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)