Vildi ekki rökstyðja „staðreyndina“

„Ég er ekki sammála þessari útlistun en ég held að við komumst ekki lengra með það,“ sagði Heiða Kristín Helgadóttir, sérstakur aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í lok sumars, beðin af undirrituðum um að færa haldbær rök fyrir þeim orðum sínum að hótanir ráðherrans, um að það hefði „afdrifaríkar afleiðingar“ fyrir þjóðina ef hún samþykkti ekki „aðildarviðræður“ að Evrópusambandinu, væru staðreynd.

Heiða Kristrín lét þau orð falla sem athugasemd við færslu á Facebook-síðu minni um pistil sem ég ritaði á Stjórnmálin.is um hótun Þorgerðar. Þar sagði hún enn fremur: „Það felst engin hótun í því að setja þá staðreynd í rétt samhengi.“ Ég svaraði á þá leið að það væri eitt að um væri að ræða stórt mál, eins og Heiða nefndi til þess að réttalæta orð utanríkisráðherra, „en annað að hóta einhverju óskilgreindum alvarlegum afleiðingum sem í ofan á lag standast enga skoðun.“

„Væri gaman að fá einhvern haldbæran rökstuðning fyrir þessari fullyrðingu þinni. Ætti ekki að vera erfitt að koma með hann fyrst þú telur þetta staðreynd. Ég skal með mikilli ánægju síðan svara.“ Þá féllu þau orð Heiðu sem nefnd voru í upphafi. Að hún væri ekki sammála minni útlistun en hún héldi ekki að við kæmumst lengra með málið. Ég lýsti þá von minni um að rökstuðningur fyrir fullyrðingunni skilaði sér eftir páska. Því hefur hins vegar ekki verið svarað.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)