Forystumenn innan Evrópusambandsins hafa margoft lýst því yfir á liðnum árum að fyrir liggi hvað innganga í sambandið hefði í för með sér. Harðir Evrópusambandssinnar hér á landi hafa á sama tíma ítrekað haldið því fram að einhver stórkostleg leyndarhyggja væri í þeim efnum og enginn gæti fyrir vikið tekið afstöðu til málsins nema inngöngusamningur lægi fyrir. Sjálfir hafa þeir hins vegar fyrir löngu gert upp hug sinn til málsins og vilja ólmir að Ísland gangi þar inn.
Við getum tekið dæmi um Uffe heitinn Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur og mikinn áhugamann um inngöngu Íslands í Evrópusambandið sem sagði um árið í samtali við mbl.is að við Íslendingar vissum fullkomlega hvað væri í pakkanum svokallaða. „Vitanlega er Evrópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið. Það er það bezta sem þið getið gert.“
Hið sama á við um Olli Rehn, þáverandi stækkunarráðherra Evrópusambandsins, í Morgunblaðinu 10. september 2009, spurður hvort spil sambandsins yrðu loks lögð á borðið og upplýst hvað væri í boði eftir að þáverandi ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hafði sótt um inngöngu: „Ef ég nota myndlíkingu þína þá eru spil Evrópusambandsins þegar á borðinu, fyrir allra augum. Það er að segja regluverk sambandsins og meginreglur þess.“
Fulltrúar Evrópusambandsins hafa enn fremur lýst því yfir að ekki sé í boði að sækja um inngöngu í það einungis til þess að sjá hvað kunni að vera í boði líkt og til að mynda Štefan Füle, arftaki Rehns, gerði á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í október 2011. Markmiðið yrði að vera að ganga þar inn. Þetta benti Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, einnig á í samtali við DV í janúar. Forsenda þess að hefja ferlið væri vilji til að ganga í sambandið.
Hagfræðingurinn Bolli Héðinsson, sem sinnt hefur ófáum trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna og lengi viljað ganga í Evrópusambandið, sagði í gær á Facebook: „Það er einfaldlega ekki komið að því að segja hvort ESB hentar okkur eða ekki. Klárum að ræða við ESB og greiðum svo atkvæði um hvort við viljum gerast aðilar eða ekki. Þeir eru ófáir „sérfræðingarnir að sunnan“ sem eru að reyna að telja okkur trú um að þeir viti allt um þetta. Svo er einfaldlega ekki.“
Væntanlega á Bolli þarna við forystumenn innan Evrópusambandsins eins og þá sem nefndir eru til sögunnar fyrr í pistlinum. Sem sagt sérfræðinga suður í Evrópu. Sjálfur er Bolli fæddur, uppalinn og búsettur í Reykjavík þannig að landfræðilegi vinkillinn stemmir vel til viðbótar við áðurnefndan málflutning þeirra. Hitt er svo annað mál að það geta ekki beinlínis talizt meðmæli með því að ganga í Evrópusambandið ofan á annað að ekkert sé að marka það sem þaðan kemur.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

