Fyrir fimm árum ritaði Bolli Héðinsson hagfræðingur grein í Fréttablaðið þar sem hann skammaðist í Samtökum iðnaðarins fyrir það að hafa ekki inngöngu í Evrópusambandið á stefnuskrá sinni. „SI eru einu samtök sambærilegra systursamtaka í nágrannalöndunum sem hafa ekki á stefnuskrá sinni aðild að ESB.“ Þá sagði hann ákall samtakanna um samkeppnishæfni „í besta falli hlægilegt á meðan iðnrekendur þora ekki að taka afstöðu til ESB og evrunnar.“
Hins vegar vill Bolli nú meina að alls ekki sé hægt að taka afstöðu til inngöngu í Evrópusambandið nema samningur liggi fyrir í þeim efnum og hafi fyrir vikið sjálfur ekki gert upp hug sinn. Eins og ófáir aðrir harðir Evrópusambandssinnar hafa haldið fram að undanförnu. Hvers vegna var hann þá að skammast í Samtökum iðnaðarins árið 2021 á síðum Fréttablaðsins? Það lá enginn samningur fyrir þá heldur. Hvers vegna áttu þau þá að geta tekið afstöðu til málsins?
„Nú vill svo til ég hef enn ekki gert upp hug minn um hvort rétt sé að Ísland gangi í ESB. Til að vita það skortir mig upplýsingar sem aðeins fást með því að ljúka samræðum við ESB,“ sagði Bolli þannig til dæmis í gær á Facebook. Hér er einfaldlega um ákveðið örvæntingarfullt útspil að ræða sem ófáir harðir Evrópusambandssinnar hafa gripið til að undanförnu. Við vitum í öllum meginatriðum hvað innganga í Evrópusambandið fæli í sér. Rétt eins og þeir.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Höfuðstöðvar ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: almathias)

