Fleiri andvígir inngöngu í ESB en hlynntir

Fleiri eru andvígir inngöngu í Evrópusambandið en hlynntir samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið. Þannig eru 47% andvíg því að Ísland gangi í sambandið en 40% hlynnt. Ef aðeins er miðað við þá sem tóku afstöðu með eða á móti eru 54% andvíg inngöngu í Evrópusambandið en 46% hlynnt.

Fyrir ári var staðan 44% hlynnt og 36% andvíg. Með öllum svarmöguleikum eru 28,3% alfarið andvíg því að gengið verði í Evrópusambandið, 7,8% mjög andvíg inngöngu, 10,5% frekar andvíg, 13,3% hvorki né, 13,6% frekar hlynnt, 12,5% mjög hlynnt og 14,2% alfarið hlynnt. Með öðrum orðum eru tvöfalt fleiri alfarið andvígir en alfarið hlynntir.

Fram kemur í frétt blaðsins að andstaðan við að Ísland gangi í Evrópusambandið hafi aukizt jafnt og þétt undanfarið ár samkvæmt Gallup. Sem sagt frá því skömmu eftir að málið var sett á dagskrá af núverandi ríkisstjórn. Þetta er fyrsta könnun fyrirtækisins sem sýnir fleiri andvíga inngöngu en hlynnta síðan fyrir innrásina í Úkraínu 2022.

Horft til flokkanna er andstaðan mest hjá kjósendum Miðflokksins eða 90%. Þá eru 85% kjósenda Framsóknarflokksins andvígir inngöngu og 83% kjósenda Sjálfstæðisflokksins. Hins vegar eru 10% kjósenda Framsóknar hlynnt því að gengið verði í sambandið, 5% kjósenda Miðflokksins og einungis 3% kjósenda Sjálfstæðisflokksins.

Kjósendur Samfylkingarinnar eru hlynntastir inngöngu í Evrópusambandið eða 83% þeirra, 78% kjósenda Viðreisnar og 49% kjósenda Flokks fólksins. Á hinn bóginn segjast 32% kjósenda Flokks fólksins vera andvígir inngöngu í Evrópusambandið, 6% kjósenda Samfylkingarinnar og 3% kjósenda Viðreisnar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Frá Þingvöllum. Eigandi: Eric Spenle)