„Það gengur hratt á pólitískt auðmagn ríkisstjórnarinnar. Verðbólga, vextir – og svo spilar óánægja með kílómetragjald inn í. ESB-umræðan þvælist líka fyrir, það hefur ætíð verið mjög auðvelt að magna upp andstöðu við ESB meðal þjóðarinnar. Taka upp nokkra frasa og endurtaka þá í sífellu. Ég segi það sama og árið 2010 – það er pólitískur ómöguleiki að koma Íslandi í Evrópusambandið. Gekk ekki þá, gengur ekki nú.. Raunsætt mat,“ sagði fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann ræddi stöðu ríkisstjórnarinnar og tilraunum hennar til að koma Íslandi í sambandið.
Vissulega hafa verið notaðir frasar á báða bóga. Við þekkjum þá sem Evrópusambandssinnar hafa einkum notað um lægri vexti og matvælaverð. Vandamálið með þá frasa er að þeir standast ekki skoðun. Frasarnir sem notaðir hafa verið í röðum fullveldissinna gera það hins vegar allajafna. Sem sést bezt á því hversu illa hefur gengið að hrekja þá. Egill hefur annars áður lýst efasemdum sínum um að rétt væri að fara í þessa vegferð þrátt fyrir að vera sjálfur afar jákvæður fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Til að mynda gerði hann það í desember 2024 áður en ríkisstjórnin tók við völdum.
„Deilur um Evrópu yrðu erfiðar og tímafrekar, betra að einbeita sér að heilbrigðis-, velferðar- og húsnæðismálum þar sem skórinn kreppir verulega. Háleit markmið eru góð, en þau mega ekki vera of mörg og flókin,“ sagði Egill þannig á Facebook-síðu sinni. Ráðlagði hann flokkunum sem mynda núverandi ríkisstjórn, en voru þá nýbyrjaðir í viðræðum um stjórnarmyndun, að „láta Evrópumálin alveg vera.“ Þá sagði hann á Sprengisandi á Bylgjunni í september síðastliðnum: „Ísland er ekki á leiðinni inn í Evrópusambandið. Ég held bara að það sé allt of erfið brekka. Þó ég sé frekar Evrópusinnaður sjálfur.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

