Vonir bundnar við pöntuðu skýrsluna

Hugsanlegt er að skýrsla erlendra sérfræðinga, sem unnin var um krónuna fyrir fjármálaráðuneytið, verði birt fyrr en til stóð og að hún verði þannig birt fljótlega eftir sveitarstjórnarkosningarnar um miðjan maí. Binda Evrópusambandssinnar nú vonir við það að hún getið orðið viðspyrna fyrir málstað þeirra í aðdraganda þjóðaratkvæðisins í lok sumars.

Til hefur staðið að birta ekki skýrsluna fyrr en skömmu fyrir þjóðaratkvæðið til þess að lágmarka mögulega umræðu um hana og að hægt verði að fara ofan í saumana á henni á þeim forsendum að skýrslan hafi ekki verið frágengin fyrr. Vegna þess hve Evrópusambandssinnar hafa farið halloka í umræðunni til þessa verður það mögulega endurskoðað.

Handvaldir sérfræðingar af Daða Má Kristóferssyni, fjármálaráðherra Viðreisnar, skipa hópinn sem falið var að vinna skýrsluna eins og fjallað hefur verið um á Stjórnmálin.is með tilliti til sjónarmiða þeirra með það fyrir augum að tryggja að niðurstaðan verði hagstæð fyrir málstað þeirra sem styðja inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evrunnar.

Sérfræðingarnir fjórir, þau Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðingur OECD (formaður hópsins), Hilde C. Bjørnland, prófessor við BI Norwegian Business School, Steinar Holden, prófessor við Háskólann í Osló, og Stijn Claessens, hagfræðingur með bakgrunn hjá BIS og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, þykja þannig hafa mjög einsleitan bakgrunn.

Við gerð skýrslunnar fundaði hópurinn með ýmsum hagsmunaaðilum hér á landi og vakti athygli í þeim heimsóknum að sérfræðingarnir virtust með fyrirframgefnar hugmyndir varðandi viðfangsefnið og vera á höttunum eftir upplýsingum sem væru til þess fallnar að styðja þá afstöðu þeirra. Það er að segja að kasta ætti krónunni fyrir róða.

Spurningar sérfræðinganna þóttu í þeim anda og eins viðbrögð þeirra við því þegar veittar voru upplýsingar sem voru jákvæðar í garð krónunnar og þar með ekki í samræmi við það sem þeir virtust vera að sækjast eftir. Hefur þetta þótt styðja við þá upplifun ófárra að sérfræðingarnir hefðu þegar verið búnir að taka afgerandi afstöðu til málsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Valdis Dombrovskis, efnahagsráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)