Hvar er skoðanakönnunin, Þorgerður?

Maskína hefur undanfarin ár unnið árlega stóra skoðanakönnun fyrir utanríkisráðuneytið um viðhorf almennings til ýmissa þátta utanríkisþjónustu landsins. Meðal þess sem spurt hefur verið um er afstaða fólks til Evrópusambandsins. Á síðasta ári var meðal annars spurt um afstöðuna til inngöngu í sambandið og aðildarviðræðna við það. Slík könnun var einnig gerð í ár og ásamt öðru spurt með sama hætti um sambandið. Þó niðurstöðurnar liggi fyrir hafa þær ekki verið birtar.

Fyrir liggur að utanríkisráðuneytið hefur þegar fengið niðurstöður könnunarinnar afhentar frá Maskínu enda vitnaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, í niðurstöður nokkurra spurninganna í henni í ávarpi sínu á ráðstefnu um alþjóðasamvinnu sem fram fór í Norræna húsinu í gær. Meðal annars varðandi afstöðu fólks til alþjóðasamvinnu. Hins vegar minntist hún ekkert á spurningarnar sem spurt var um Evrópusambandið.

Til þessa hafa kannanir Maskínu fyrir utanríkisráðuneytið verið birtar á mælaborði á vef fyrirtækisins. Nýjasta könnunin þar er frá því fyrir ári. Hins vegar er skiljanlegt að spurningarnar um Evrópusambandið hafi ekki verið birtar í ár enda viðbúið að niðurstöðurnar hafi ekki verið Þorgerði að skapi miðað við þróun kannana undanfarið rúmt ár frá því að ríkisstjórnin setti inngöngu í sambandið á dagskrá. Rík tilhneiging er enda til þess að það leiði til meiri andstöðu við hana.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)