Mikill meirihluti vill ekki í ESB

Tiltölulega skömmu eftir miðnætti í gær birti ég pistil á Stjórnmálin.is þar sem ég spurði hvar árleg skoðanakönnun Maskínu fyrir utanríkisráðuneytið um ýmsa þætti utanríkisþjónustu landsins væri. Beindi ég orðum mínum að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Tilefnið var ávarp Þorgerðar á ráðstefnu um alþjóðasamvinnu í Norræna húsinu í gær þar sem hún minnist á ákveðnar niðurstöður hennar. Þó ekki varðandi Evrópusambandið. Ég fylgdist síðan með því í dag hvort könnunin yrði mögulega birt á vef ráðuneytisins í kjölfarið á pistlinum og varð sú raunin síðdegis.

Fram kemur í tilkynningu utanríkisráðuneytisins að 46% landsmanna séu nú andvíg inngöngu í Evrópusambandið en 31% hlynnt. Ef aðeins er tekið mið af þeim sem tóku afstöðu með eða á móti eru tæp 60% andvíg en rúm 40% hlynnt. Í könnun Maskínu fyrir ráðuneytið fyrir ári voru 40% andvíg inngöngu í sambandið en 36% hlynnt eða tæp 53% andvíg og 47% hlynnt. Með öðrum orðum er ljóst að andstaða við það að Ísland gangi í Evrópusambandið hefur aukist mjög mikið frá því fyrir ári síðan. Það er að segja í kjölfar þess að innganga í sambandið var sett á dagskrá af ríkisstjórninni.

Spurt var einnig um afstöðuna til aðildarviðræðna við Evrópusambandið og eru 42% hlynnt því að hefja þær að nýju en 39% andvíg samkvæmt könnuninni. Eða tæp 52% hlynnt og rúm 48% andvíg ef aðeins er horft er til þeirra sem taka afstöðu með eða á móti. Fyrir ári voru 45% hlynnt því og 34% andvíg eða 57% gegn 43%. Andstaðan við aðildarviðræður hefur þannig einnig aukizt mikið síðan nokkru eftir að ríkisstjórnin setti málið á dagskrá. Viðbúið er að niðurstöðurnar verði ekki til þess að minnka áhyggjur Evrópusambandssinna af þróun mála sem ljóst er að voru bæði miklar og vaxandi fyrir.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)