Málflutningur hérlendra Evrópusambandsinna hefur á undanförnum mánuðum einkum snúizt um það að innganga Íslands í Evrópusambandið myndi stuðla að auknu öryggi landsins og efnahagslegum stöðugleika. Fróðlegt er meðal annars í því ljósi að skoða niðurstöður skoðanakönnunar Maskínu fyrir utanríkisráðuneytið sem birtar voru fyrr í vikunni.
Miðað við könnunina telja þannig aðeins 39,5% landsmanna að innganga í Evrópusambandið myndi auka öryggi Íslands. Hins vegar telja um 60% að það yrði annað hvort minna eða óbreytt. Þar af 40,1% að innganga í sambandið breytti engu í þeim efnum. Hvað stöðugleika varðar telja 49% að hann yrði meiri en 51% að hann yrði minni eða óbreyttur.
Til upprifjunar eru 46% landsmanna andsnúin inngöngu í Evrópusambandið og 31% hlynnt samkvæmt könnuninni. Ef aðeins er tekið mið af þeim sem tóku afstöðu með eða á móti eru tæp 60% andvíg en rúm 40% hlynnt. Í könnun Maskínu fyrir ráðuneytið fyrir ári voru 40% andvíg inngöngu í sambandið en 36% hlynnt eða tæp 53% andvíg og 47% hlynnt.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Ríkisfáni Íslands á Þingvöllum. Eigandi: Forsetaembætti Úkraínu)

