Fer að verða frekar lítið eftir

Hvað sem fólki kann að finnast um áform um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka þá liggur að minnsta kosti fyrir að Flokkur fólksins með Ingu Sæland í broddi fylkingar hefur verið algerlega andvígur henni. Þangað til núna. Haft var eftir Ingu í fjölmiðlum í dag að hún treysti nýjum fjármálaráðherra, Daða Má Kristóferssyni, fullkomlega til þess að sjá um söluna. Meginástæðan fyrir því að flokkurinn lagðist áður gegn sölunni, allavega í orði kveðnu, var þó ekki hvort hann bæri traust til þáverandi fjármálaráðherra heldur að með því væri að mati hans verið að selja eina af gullgæsum ríkisins.


Fyrir vikið vaknar eðlilega sú spurning hvað sé að verða eftir af helztu stefnumálum Flokks fólksins. Flokkurinn hefur áður gefið stærsta stefnumál sitt upp á bátinn um lágmarksframfærslu upp á 450 þúsund krónur á mánuði skattlaust sem Inga sagði fyrir kosningar að væri skilyrði fyrir þátttöku í ríkisstjórn enda hefði hann beinlínis verið stofnaður í kringum það. Hið sama á við um andstöðu Flokks fólksins við inngöngu í Evrópusambandið sem og andstöðu hans við samþykkt bókunar 35 við EES-samninginn sem Inga og fleiri í forystusveit flokksins bentu réttilega á að færi gegn stjórnarskránni.


Hvað breyttist? Jú, Inga og Flokkur fólksins eru nú komin í ríkisstjórn. Svo virðist sem flestu eða öllu hafi verið fórnandi fyrir það. Vitanlega er þetta ekki í fyrsta sinn sem flokkur fórnar stefnumálum í því skyni en forystumenn hans vildu hins vegar meina að þannig væri hann ekki. Sennilega er þó leitun að flokki sem gengið hefur jafn langt í þessum efnum. En eins og Inga sagði í Spursmálum á mbl.is daginn eftir þingkosningarnar, spurð hvort hún væri öll að mýkjast upp í andstöðu sinni við inngöngu Íslands í Evrópusambandið: „Ég hef alltaf verið svona mjúk, ég þóttist bara ekki vera það.“ 

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)