Meðal þess sem fram kom í máli Vilborgar Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðings í Sprengisandi á Bylgjunni síðastliðinn sunnudag var að hún ætti von á því að sá tími sem færi í viðræðuhluta umsóknarferlis að Evrópusambandið, yrði samþykkt í þjóðaratkvæðinu í lok sumars að hefja það, yrði lengri en ríkisstjórnin væri að reikna með.
Komið hefur fram í máli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, að viðræðurnar gætu tekið tvö ár. Þar áður talaði hún um eitt og hálft ár. Pawel Bartozek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis og þingmaður flokksins, hefur hins vegar sagt að það gæti tekið fjögur ár fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið.
Mikið var rætt um það í röðum Evrópusambandsinna síðast þegar umsóknarferlið var sett af stað að það myndi taka tiltölulega skamman tíma. Þegar því var slitið tæpum fjórum árum síðar hafði ekki verið gert mikið meira en að ræða aftur um EES-samninginn. Með öðrum orðum má ljóst vera að verði ferlið hafið á ný verði það í gangi næstu árin.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

