Mikill meirihluti leikmanna í bæði Bestu deild karla og kvenna í knattspyrnu er andvígur inngöngu Íslands í Evrópusambandið miðað við kannanir sem gerðar voru í tengslum við kynningarfundi þeirra nýverið.
Frá þessu var greint í fjölmiðlum á dögunum en á meðal kvennanna voru þannig 65% andvíg því að ganga í Evrópusambandið en 35% hlynnt og í röðum karlanna 76% á móti en 24% með inngöngu í það.
Þess má annars geta að samkvæmt nýlegri skoðanakönnun Maskínu fyrir utanríkisráðuneytið á meðal landsmanna reyndust 60% þeirra sem tóku afstöðu með eða á móti andvíg inngöngu en 40% hlynnt.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þjóðfáni Íslands. Eigandi: Dickelbers – Attribution 4.0 International)

