„Hvert ríki sem sækir um inngöngu í Evrópusambandið verður að uppfylla sömu ströngu skilyrðin og fylgja sama stranga ferlinu til þess að ganga í sambandið.“ Þetta er á meðal þess sem fram kemur á vefsíðum Evrópusambandsins um inngöngu ríkja í það. Með öðrum orðum er ekki í boði nein sérmeðferð í þeim efnum. Einungis er þannig um að ræða eitt ferli sem snýst um aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins samhliða viðræðum um inngöngu í það.
Fram kemur á vefsíðum Evrópusambandsins að samhliða viðræðunum undirbúi umsóknarríki sig þannig fyrir það að aðlagast stjórnsýslu og regluverki sambandsins og í hverju sá undirbúningur felist. „Þessar viðræður hjálpa til við að undirbúa umsóknarríkið fyrir það að ganga að lokum í Evrópusambandið og snúast um upptöku á gildandi regluverki sambandsins og innleiðingu á nauðsynlegum umbótum á sviði dóms-, stjórnsýslu- og efnahagsmála.“
Hið sama kemur víða fram í gögnum Evrópusambandsins. Boðskapurinn er alltaf sá sami: „Umsóknarríkið fer þá í formlegar inngönguviðræður, ferli sem felur í sér upptöku gildandi regluverks Evrópusambandsins, undirbúning fyrir að geta innleitt það með réttum hætti og framfylgt því og innleiðing á umbótum á sviði dóms-, stjórnsýslu- og efnahagsmála og öðrum umbótum sem nauðsynlegar eru til þess að ríkið geti uppfyllt skilyrði inngöngu í sambandið.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Höfuðstöðvar ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)

