Verði ekki að þeirri ósk sinni

Full ástæða er til þess að fagna því að þjóðinni verði falið að greiða atkvæði um það hvort hefjaskuli á leik umsóknarferli að Evrópusambandinu. Slíkar atkvæðagreiðslur eru í eðli sínu lýðræðislegar þó ekki sé því miður hægt að segja að sú pólitíska ákvörðun að boða til fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis hafi verið það. Það verður seint talið i anda lýðræðisins að segja kjósendum fyrir þingkosningar að ekki standi til að gera eitthvað en gera það svo strax eftir þær.

Hitt er svo annað mál að ríkisstjórnin hefur kosið að standa að málum með þeim ólýðræðislega hætti og þar með er það veruleikinn sem við stöndum frammi fyrir. Þá verður sá slagur vitanlega einfaldlega tekinn og hefur þegar verið tekinn. Hins vegar erum við fullveldissinnar enn aðeins að hita upp í þeim efnum. Mikill og vaxandi hugur er í fólki í þeim efnum og ekki skemmir fyrir að skoðanakannanir skuli sýna vaxandi andstæðu bæði við inngöngu í Evrópusambandið og aðildarviðræður eins og ríkisstjórnin kýs að kalla umsóknarferlið að sambandinu.

Verði samþykkt í þjóðaratkvæðinu að stefna að inngöngu í Evrópusambandið hefst umfangsmikið ferli sem líklegt er að taka muni einhver ár. Þar mun verða þörf fyrir ríkisstjórn samstíga um það að gengið verði í sambandið og þingmeirihluta fyrir því. Ríkisstjórnin þarf þá að samþykkja opnun og lokun einstakra kafla og þingið að samþykkja breytingar á lögum vegna þeirrar aðlögunar að regluverki og stjórnsýslu sambandsins sem ferlið krefst.

Mjög langur vegur er enda frá því að einungis verði um að ræða einfaldar viðræður við Evrópusambandið verði já ofan á í þjóðaratkvæðinu og hvað þá samningaviðræður. Það kemur skýrt fram í gögnum sambandsins um stækkunarmál þess að ferlið snúist þvert á móti um aðlögun samhliða viðræðunum. Hið sama fram í greinargerðinni með þingsályktunartillögu utanríkisráðherra sem hér er til umræðu en þar segir. „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“

Fulltrúar Evrópusambandsins sem fylgdust með umsóknarferlinu síðast lýstu ítrekað yfir áhyggjum sínum af því í skýrslum sínum að þáverandi ríkisstjórn væri ekki einhuga um það að ganga í sambandið. Enda varð það að lokum eitt af því sem kom ferlinu upp á sker. Meira að segja Þorsteinn Pálsson, guðfaðir Viðreisnar, benti ítrekað á það á þeim tíma að slík ríkisstjórn gæti ekki klárað ferlið. Það væri þannig til að mynfa andstætt þingræðisreglunni að utanríkisráðherra undirritaði samning án þess að fyrir lægi að meirihluti væri fyrir því í þinginu.

Hvernig sem litið er á umrætt mál hefur verið illa staðið að því og úr því kvarnast sífellt meira. Viðreisn og flokksformaðurinn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sitja uppi með málið. Hinir tveir oddvitar ríkisstjórnarinnar ætla ekki að beita sér í umræðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðisins. Ég ætla að lokum að spá því hér með að utanríkisráðherra verði ekki að þeirri ósk sinni að samþykkt verði í þjóðaratkvæðinu að stefnt verði að inngöngu í Evrópusambandið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)