Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra?

Málflutningur hörðustu talsmanna þess að Ísland gangi í Evrópusambandið verður sífellt áhugaverðari og sér líklega ekki fyrir endann hvað það varðar. Ekki verður betur séð en að vaxandi örvænting sér rauði þráðurinn í þeim efnum. Hvert hálmstráið á fætur öðru er gripið og flúið úr einu víginu í annað. Þar hefur Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, farið einna fremstur í flokki þó drifkraftur framgöngu hans sé þó ekki fyrst og fremst löngun til þess að ganga í sambandið heldur viðleitni hans til þess að ná sér niðri á Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni flokksins, vegna þeirrar ítrekuðu auðmýkingar sem hann telur sig hafa orðið fyrir af hennar hendi síðan hann fór yfir í landsmálin.

Meðal þess sem harðir Evrópusambandssinnar hafa þannig ítrekað sagt í umræðunni er að þeir sem hafi í hyggju að segja nei í þjóðaratkvæðinu fyrirhugaða í lok ágúst, um það hvort stefna eigi að inngöngu í Evrópusambandið, séu með því að sýna af sér forræðishyggju, vinna gegn lýðræðinu og koma í veg fyrir að þeir sem ætli að segja já fái að sjá samning í þeim efnum. Hvernig það teljist lýðræðislegt að ætlazt til þess að fólk greiði ekki atkvæði samkvæmt eigin sannfæringu heldur annarra, sem í ofan á lag eru algerlega andstæðrar skoðunar, er vandséð. Þá erum við fyrst að tala um forræðishyggju og ólýðræðislega framgöngu. Vonandi kjósa allir samkvæmt eigin sannfæringu en ekki annarra. Það er jú kjarni lýðræðisins.

Dónaskapur?

Hægt er ef til vill að líkja þessari framgöngu harðra talsmanna inngöngu í Evrópusambandið við það að skammast út í þá sem hyggjast kjósa önnur framboð en tiltekinn einstaklingur í þingkosningum með þeim rökum að fái það framboð sem hann styður ekki nægt fylgi til þess að komast í ríkisstjórn geti hann ekki séð hvort það standi við kosningaloforðin sín. Munurinn er reyndar sá að Evrópusambandið hefur engu lofað um það hvað verði kveðið á um í mögulegum samningi fyrir utan regluverk þess og þvert á móti ítrekað lýst því yfir, bæði í ræðu og riti, að engar varanlegar undanþágur verði í boði frá yfirstjórn sambandsins (opt-outs) í öllum þeim málaflokkum sem færu undir stjórn þess og þar á meðal sjávarútvegsmálin.

Helga Vala Helgadóttir, varaformaður Evrópuhreyfingarinnar, hélt því jafnvel fram á Samstöðinni um helgina að það væri dónaskapur að kjósa nei í þjóðaratkvæðinu. Er það þá kurteisi að skamma fólk fyrir það að ætla að kjósa samkvæmt eigin sannfæringu í lýðræðislegum kosningum? Nær væri að segja slíka framgöngu dónaskap svo ekki sé fastar að orði kveðið. Sennilega hefur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, þó gengið lengst enn sem komið er með þeim ummælum sínum í viðtali við Heimildina nýverið að það hefði alvarlegar afleiðingar fyrir þjóðina ef niðurstaða þjóðaratkvæðisins yrði nei. Nokkuð sem erfitt er að skilgreina sem annað en hótun í garð hennar.

Hvar er fólkið?

Mögulega er því ekki að furða að Þorgerður og þröngur hópur harðra Evrópusambandssinna verði sífellt einangraðri vegna málsins. Margir einarðir stuðningsmenn inngöngu í Evrópusambandið láta vart eða alls ekki heyra í sér sem hins vegar beittu sér á síðasta ári í greinaskrifum og öðru slíku í þágu þess. Hvar hafa til dæmis Viðreisnarráðherrarnir Hanna Katrín Friðriksson og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir verið í umræðunni undanfarið? Hvar hefur Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, verið sem beitti sér talsvert í þessum efnum á síðasta ári en ekki hefur heyrzt í eftir að tilkynnt var um dagsetningu þjóðaratkvæðisins? Minna heyrist jafnvel í Sigmari Guðmundssyni, þingmanni Viðreisnar.

Hvers vegna forðast Kristrún það eins og heitann eldinn að blanda sér í umræðum um málið og gerir það ekki nema hún neyðist til þess? Hvers vegna hyggst hún ekki beita sér í kosningabaráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðisins? Kristrún sagði fyrir kosningar að ein forsenda þess að setja málið á dagskrá væri þingmeirihluti fyrir því. Hann er ekki til staðar sem aftur er meginástæða þess að fyrirhugað þjóðaratkvæði stendur fyrir dyrum. Til að reyna að komast í kringum þann veruleika og setja þrýsting á þingið. Annars væri sú ekki raunin. Þorgerður sagði í Spursmálum rétt fyrir síðustu kosningar að slíkt þjóðaratkvæði væri mikil málamiðlun af hálfu Viðreisnar. Þarf að gera málamiðlun um eitthvað sem maður styður?

Böðlast áfram

Kristrún sagði einnig fyrir kosningar að forsenda þess að setja inngöngu í Evrópusambandið á dagskrá væri stuðningur aðila vinnumarkaðarins. Meirihluti félagsmanna Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins og Félags atvinnurekenda eru hins vegar andvígir því að Ísland gangi í sambandið. Tvö stærstu verkalýðsfélög landsins, VR og Efling, eru einnig andvíg inngöngu í það. Svo ekki sé talað um þjóðina. Staðan í þeim efnum var allt önnur þegar umsóknarferlið var sett í gangi síðast. Við erum einnig með klofna ríkisstjórn gagnvart málinu eins og síðast sem olli því einna helzt að ferlið lenti uppi á skeri. Áður höfðu fulltrúar Evrópusambandsins, sem fylgdust með ferlinu, lýst ítrekuðum áhyggjum af því í skýrslum sínum.

Fyrrnefndir ráðherrar og þingmenn hafa ekki skipt um skoðun á málinu. Þeir vilja sem fyrr ganga í Evrópusambandið. Þeim lýzt hins vegar ekkert á það hvernig staðið hefur verið að málinu. Þorgerður böðlast áfram í þeim efnum og er sem fyrr segir jafnvel farin að hafa í hótunum við kjósendur. Miklu nær er að það hafi alvarlegar afleiðingar að segja já og opna þar með á fulla aðlögun að sambandinu áður en samningur lægi fyrir með tilheyra útþenslu hins opinbera samkvæmt gögnum þess. Verði niðurstaðan hins vegar nei verður hægt að leggja áherzlu á efnahagslífið í stað þess að eyða tíma og fjármunum í aðlögunarferli að Evrópusambandinu til þess að komast að einhverju sem þegar liggur fyrir í öllum meginatriðum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 28. apríl 2026)

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)