„Það er fólkið í landinu sem á tekjurnar“

„Höfum eitt á hreinu: Ríkið á ekki tekjurnar. Ríkið á ekki sjálfsaflafé fólks. Það er fólkið í landinu sem á tekjurnar. Það er fólkið og fyrirtækin í landinu sem skapa verðmætin,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni eftir að hafa skipzt á skoðunum við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag þar sem ráðherrann sagði að ríkisstjórnin ætlaði ekki í „eftirgjöf á tekjum“.

„Forsætisráðherra lofaði stöðugleika, lægri vöxtum og ábyrgð í ríkisfjármálum. En nú sjáum við hallærisplanið í framkvæmd: Meiri útgjöld, minna aðhald og hærri skattar. Svar forsætisráðherra var á þá leið að ríkisstjórnin ætlaði ekki í „eftirgjöf á tekjum“. Þetta finnst mér ótrúlegt orðalag – og þarna sést skýr munur á lífsviðhorfi okkar hægrimanna og vinstrimanna í Samfylkingunni,“ sagði formaður Sjálfstæðisflokksins enn fremur og síðan áfram:

„Ríkið er ekki að gefa neinar tekjur eftir vegna þess að ríkið á ekki tekjurnar. Þær eru fólksins í landinu. Ríkisstjórnin vill meina að skattar séu fyrst og fremst peningar ríkisins og fólkið fái svo, ef það er heppið og með leyfi ríkisins, að halda einhverju eftir í sinn hlut. Þetta lífsviðhorf munum við Sjálfstæðismenn aldrei samþykkja. Ríkið á að fara vel með þá fjármuni sem það innheimtir. Sérstaklega núna, þegar heimilin glíma við háa vexti og verðbólgu.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Guðrún Hafsteinsdóttir)