Finnland er eina norræna ríkið sem tekið hefur upp evruna sem gjaldmiðil sinn. Danir og Svíar, sem eru í Evrópusambandinu eins og Finnar, hafa hafnað upptöku hennar í þjóðaratkvæðagreiðslum og Norðmenn hafa hafnað inngöngu í sambandið. Evran var hins vegar tekin upp í Finnlandi án þess að haldið væri sérstakt þjóðaratkvæði um það.
Fjallað var um slæmt efnahagsástand í Finnlandi í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær. Staðan hefur lengi verið slæm en farið versnandi. Í fréttinni sagði að finnskur almennings hefði vaxandi áhyggjur af efnahagsástandinu og væri svartsýnn á horfurnar á næstu árum. Atvinnuleysi væri yfir 10% og skuldir ríkisins um 90% af landsframleiðslu.
Fram kom að samkvæmt nýlegri skoðanakönnun teldi helmingur Finna að efnahagurinn ætti eftir að versna næsta árið og aðeins 14% að hann myndi batna. Þeir sem hyggðu á fasteignakaup hefðu ekki verið færri síðan árið 1999. Ríkisstjórnin hefði beitt niðurskurðarhnífnum, þar á meðal í velferðarkerfinu, og boðaði frekari niðurskurð.
Við þetta má síðan bæta að atvinnuleysi á meðal ungs fólks á aldrinum 15-24 ára var 24,3% í marz samkvæmt tölum finnsku hagstofunnar. Sú fastgengisstefna sem fylgir evrunni á sinn þátt í efnahagserfiðleikum Finna meðal annars í gegnum aukið atvinnuleysi en ella og minna svigrúm finnskra stjórnvalda til þess að bregðast við þeim.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Frá Helsinki, höfuðborg Finnlands. Eigandi: Old Pionear – Attribution 4.0 International)

