Vildi að ESB hunzaði vilja ríkisstjórnar Íslands

„Ég vil biðja ykk­ur um að þrýsta á framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að líta áfram á Ísland sem umsóknarríki að sambandinu.“ Þetta var haft eftir Árna Páli Árna­syni, þáverandi formanni Samfylkingarinnar, á Twitter-síðu þingflokks Jafnaðarmanna og demókrata á þingi Evrópusambandsins í lok apríl 2015. Árni Páll var þá stadd­ur í Brussel en hann hafði áður heitið því að beita samböndum Samfylkingarinnar erlendis gegn íslenzkum stjórnvöldum í málinu.

Með öðrum orðum vildi Árni Páll fá Evrópusambandið til þess að hafa að engu vilja ríkisstjórnar Íslands. Að vísu reyndist sambandinu það hægur leikur þar sem bréf sem Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra, sendi til þess fól í orði kveðnu ekki í sér að umsókn ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, sem Árni Páll hafði setið í, væri formlega dregin til baka þó ráðamönnum í Brussel hafi mátt vera fyllilega meðvitaðir um vilja hérlendra stjórnvalda.


Málið snerist um rétta hugtakanotkun í bréfinu. Í enskri útgáfu þess kom fram að Ísland væri að mati íslenzkra stjórnvalda ekki lengur „candidate country“ en rétt hefði verið að nota hugtakið „applicant country“. Fyrra hugtakið vísar til ríkis sem hefur fengið umsókn sína samþykkta en það síðara ríkis sem sent hefur inn umsókn sem ekki hefur verið samþykkt en drög að bréfinu voru samin af embættismönnum utanríkisráðuneytisins í samráði við kollega þeirra hjá sambandinu.

Veruleikinn er sá að Evrópusambandið sleppir ekki svo auðveldlega klónum af því sem það hefur einu sinni læst þeim í. Til þess að bréfið hefði mögulega getað skilað tilætluðum árangri hefði þannig allavega þurft að nota hugtakið „applicant country“ en helzt þó auðvitað að segja hreint út að umsóknin væri dregin til baka. Bezt hefði þó vitanlega verið að málið hefði verið afgreitt með nýrri þingsálytun af Alþingi en gefizt var hins vegar upp á því vegna málþófs stjórnrandstöðunnar.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þinghús Evrópusambandsins í Strasbourg. Eigandi: Evrópusambandsþingið)