Var Íslandi hótað skaðabótamáli?

Ég hef stundum furðað mig á því hvers vegna íslenzk stjórnvöld sendu einfaldlega ekki annað bréf til Evrópusambandsins, þess efnis að umsókn ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna um inngöngu í sambandið hefði verið dregin til baka, þegar ljóst var að bréfið sem Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra, hafði áður sent reyndist ekki fullnægjandi. Ég hef til þessa ekki fengið nein svör við því. Hins vegar liggur nú mögulega fyrir skýring í þeim efnum.

Heimildir mínar herma að ástæðan sé sú að íslenzkum ráðmönnum hafi verið tilkynnt af Evrópusambandinu að yrði gengið lengra en gert var með bréfi Gunnars Braga og sagt hreint út að umsóknin væri formlega dregin til baka myndi sambandið höfða skaðabótamál gegn Íslandi vegna útlagðs kostnaðar við umsóknarferlið, einkum svonefnda IPA-styrki. Þá hefði verið hótað að skilmálum vegna lána landsins hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðinum yrði breytt til hins verra.


Hótun um að beita áhrifum sínum til þess að hafa áhrif á lánveitingar AGS til Íslands í kjölfar bankahrunsins hafði áður komið frá stjórnvöldum í Bretlandi og Hollandi auk Evrópusambandsins vegna Icesave-deilunnar sem var ein af ástæðum þess að þáverandi vinstristjórn kaus að fara samningaleiðina í stað þess að fara með málið fyrir dómstóla eins og gert var að lokum og lauk með sigri Íslands. Hins vegar kom þó aldrei til þess að hróflað væri við lánaskilmálunum.

Miðað við umræddar heimildir mínar var ákveðið að fara ekki lengra með málið af hálfu íslenzkra stjórnvalda einkum af þessum sökum. Hitt er svo annað mál að vandséð er á hvaða grunni slík skaðabótakrafa hefði átt að vera reist og fyrir hvaða dómstóli hefði mátt sækja það mál. Helzt væri það væntanlega varnarþing íslenzka ríkisins, Héraðsdómur Reykjavíkur. Hins vegar er hvergi að finna heimild til þess að sækja slíkar skaðabætur í gögnum tengdum umsókninni.


Til að mynda var beinlínis gert ráð fyrir því í samningi Íslands og Evrópusambandsins um IPA-styrkina, sem hugsaðir voru til þess að undirbúa landið fyrir inngöngu í sambandið, að til þess gæti komið að honum yrði sagt upp í miðjum klíðum. Við þær aðstæður ætti að greiða út þá styrki sem þegar hefði verið samið um. Við það stóð Evrópusambandið reyndar ekki og fyrir vikið væri miklu fremur um það að ræða að sambandið stæði í skuld við Ísland en á hinn veginn.

Hafi Íslandi verið hótað með þessum hætti af Evrópusambandinu, eins og heimildir mínar herma, skýrir það margt og er enn fremur mjög í anda framgöngu þess bæði í Icesave-deilunni og makríldeilunni þar sem ýmsar hótanir voru viðraðar í garð okkar Íslendinga ef ekki yrði látið undan kröfum sambandsins. Þannig hótaði Evrópusambandið okkur meðal annars refsiaðgerðum vegna makrílveiða í okkar eigin lögsögu. Sem betur fer var ekki látið undan þeim hótunum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)