„Vangaveltur eru eitt en staðreyndirnar annað,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, í samtali við mbl.is 23. febrúar síðastliðinn þar sem hún var spurð út í umfjöllun fréttavefsins Politico sem hafði greint frá því að samkvæmt heimildum færi þjóðaratkvæðið um Evrópusambandið fram í ágúst eins og síðan reyndist rétt. „Það eru alls konar vangaveltur úti um allan heim um alls konar hluti. Þetta er bara það sem þau setja fram.“
Spurð hvort henni þætti nægur fyrirvari ef þjóðaratkvæðið færi fram í ágúst svaraði Þorgerður: „Af hverju segir þú ágúst en ekki bara desember eða eitthvað annað?“ Tvennt lægi fyrir í þeim efnum. Annars vegar að þjóðaratkvæðið færi fram eigi síðar en 2027 í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og hins vegar að hún myndi leggja fram þingsályktunartillögu um kosninguna á vorþinginu. „Það er það sem hefur verið ákveðið og annað hefur ekki verið ákveðið.“
Fram kemur hins vegar í gögnum utanríkisráðuneytisins sem afhent hafa verið utanríkismálanefnd Alþingis um samskipti Þorgerðar við erlenda ráðamenn vegna þjóðaratkvæðisins að hún hafi upplýst ýmsa í þeim röðum um það 13.-14. febrúar að stefnt væri að því að þjóðaratkvæðið færi ekki fram seinna en næsta haust. Til dæmis Wopke Hoekstra, loftlagsráðherra Evrópusambandsins, utanríkisráðherra Írlands og varaformann þingflokks þýzkra jafnaðarmanna.
Hvað varðar orð Þorgerðar í samtali við mbl.is 23. febrúar, þess efnis að engar ákvarðanir hefðu verið teknar aðrar en að þjóðaratkvæðið færi fram eigi síðar en 2027 og að þingsályktunartillaga yrði lögð fram á vorþinginu, kemur fram í umræddum gögnum að hún hafi upplýst Mörtu Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, og Köju Kallas, utanríkisráðherra þess, um það 19. janúar að samkomulag væri á milli forystumanna ríkisstjórnarflokkanna um að flýta ferlinu.
Með öðrum orðum hefur Þorgerður haldið ráðamönnum Evrópusambandsins og ríkja innan þess betur upplýstum um þróun mála varðandi þjóðaratkvæðið en Alþingi, utanríkismálanefnd þess, hérlendum fjölmiðlum og þjóðinni. Hún hefur beinlínis fullyrt hér heima að ekkert væri í gangi í þeim efnum á sama tíma og ráðamenn sambandsins hafa verið upplýstir um annað. Mikilvægum upplýsingum um málið hefur þannig markvisst verið haldið frá bæði þinginu og þjóðinni.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kaja Kallas, utanríkisráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)

