Fram kemur í skýrslu þings Evrópusambandsins um norðurslóðir, sem samþykkt var með miklum meirihluta atkvæða í þinginu í nóvember, vilji til að hafa áhrif á þjóðaratkvæðið um sambandið í lok ágúst og aðrar helztu stofnanir þess hvattar til að „taka með virkum hætti þátt í því með íslenzku ríkisstjórninni að kynna kosti mögulegrar aðildar að ESB og vinna að auknum undirbúningi fyrir endurnýjað umsóknarferli ef Ísland virkjar með formlegum hætti umsókn sína.“
Fjallað er einnig um það í skýrslunni hverjir hafi lagt fram efni til hennar og kemur þar fram að þar á meðal hafi verið utanríkisráðherra Íslands. Það er að segja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir en vinna við skýrsluna hófst á síðasta ári eftir að hún tók við embætti. Enginn annar ráðherra gerði slíkt og er Þorgerður æðsti embættismaðurinn sem það gerði. Einnig kemur fram að félagar í Viðreisn hafi lagt til efni í skýrsluna og sendiherra Íslands gagnvart norðurslóðum.
Miklum áhuga þings Evrópusambandsins á auðlindum Íslands sem og Noregs og Grænlands er enn fremur gerð skil í skýrslunni og aðrar stofnanir sambandsins hvattar til þess að beita sér fyrir því að löndin gangi í það. Þar segir til að mynda að löndin þrjú ráði yfir stærstu sjálfbæru fiskimiðum norðurslóða sem séu mikilvæg fyrir matvælaöryggi Evrópusambandsins. Þá er einnig fjallað um mikilvægi orkuauðlinda svæðisins fyrir sambandið og þar með taldar auðlindir Íslands.
Vert er að rifja þetta upp í ljósi upplýsinga sem utanríkisráðuneytið hefur afhent utanríkismálanefnd Alþingis sem sýna að Þorgerður hefur haldið ráðamönnum Evrópusambandsins betur upplýstum um þróun mála varðandi fyrirhugað þjóðaratkvæði en Alþingi, utanríkismálanefnd þess og þjóðinni. Hún hafi til að mynda fullyrt hér heima að ekkert lægi nánar fyrir varðandi tímasetninguna áður en hún lá fyrir á sama tíma og ráðamenn sambandsins voru upplýstir um annað.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)

