Fór rangt með skoðanakannanir

„Þegar þú spyrð hvort Íslendingar vilja ganga í Evrópusambandið færðu um 50/50 svör við því. Þú færð hærra hlutfall hlynnt þegar þú spyrð hvort Íslendingar vilji sækja um að halda áfram viðræðum og það er aðeins hærra hlutfall sem mun samþykkja það,“ sagði Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, í samtali við fjölmiðilinn Roundtable sem birt var síðastliðinn þriðjudag 5. maí. „Síðustu skoðanakannanir benda til þess að það séu þrír jafnstórir hópar, þriðjungur er andvígur inngöngu, þriðjungur er hlynntur henni og þriðjungur er óviss.“

Vandséð er hins vegar hvaða síðustu skoðanakannanir Eiríkur var að vísa til enda standast þessi orð hans ekki skoðun. Þannig voru 47% andvíg inngöngu í Evrópusambandið samkvæmt síðustu könnun Gallups sem gerð var fyrir Viðskiptablaðið í marz, 40% hlynnt henni og 13% óviss. Í síðustu könnun Maskínu, sem gerð var fyrir utanríkisráðuneytið einnig í marz, reyndust 46% andvíg því að ganga í sambandið, 31% hlynnt og 23% óviss. Hvernig Eiríkur fékk það út að samkvæmt nýjustu könnunum væri um að ræða þrjá jafnstóra hópa í þeim efnum er því sem fyrr segir vægast sagt vandséð.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðiprófessor. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)