Skoraði á Þorgerði Katrínu að mæta sér

„Ég taldi mig nú vera að koma hingað til þess að ræða við utanríkisráðherra,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, í upphafi Sprengisands á Bylgjunni í morgun en efni þáttarins voru fundarhöld ráðherrans, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, með forystumönnum Evrópusambandsins um fyrirhugað þjóðaratkvæði þar sem þeir voru upplýstir um áform ríkisstjórnarinnar í þeim efnum áður en þeim upplýsingum var komið til Alþingis og þjóðarinnar. Þorgerður afboðaði sig á síðustu stundu í þáttinn.

Haft var ekki samband við Kristján Kristjánsson, stjórnanda Sprengisands, fyrr en um miðnætti í gærkvöldi og tilkynnt að Þorgerður kæmist ekki í þáttinn í morgun. Sú skýring fylgdi að hún hefði tvíbókað sig. Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, var kallaður út í staðinn. Guðlaugur Þór var upplýstur um þetta með sms-i rétt fyrir klukkan átta í morgun. „Það er bara mjög djúpt á því að ná að tala um þessi mál við utanríkisráðherra. Þetta er ekki í fyrsta skiptið og vil bara nota tækifæri og skora á hana að mæta mér hér eða einhvers staðar annars staðar og ræða þetta mál.“

Sjálfur hef ég reynslu af slíku. Fjölmiðlamenn hafa þannig átt í stökustu vandræðum með að fá einhverja af helztu talsmönnum Evrópusambandssinna til þess að mæta mér svo furðu sætir. Þar á meðal mjög yfirlýsingaglaða fulltrúar þeirra eins og til dæmis Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar, og Sigmar Guðmundsson, þingmann Viðreisnar. Hætt hefur ítrekað verið við að bjóða mér í þætti eftir að ekkert hefur gengið að fá einhvern á móti mér. Sjálfur hef ég sagzt til í að mæta hverjum sem er. Ég vil því eins og Guðlaugur Þór nota tækifærið og skora á þá að mæta mér 🙂

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna)