Kominn tími til að breyta í borginni

Mig langar að hvetja alla landsmenn til þess að nýta kosningaréttinn sinn í dag. Sjálfur mun ég kjósa Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík þar sem við fjölskyldan búum. Tímabært er að valdatíma einkum Samfylkingarinnar í borginni, sem staðið hefur yfir óslitið undanfarin 16 ár, ljúki. Ekki þó vegna tímalengdarinnar heldur fyrst og fremst því hvernig haldið hefur verið á málum. Gildir nánast einu hvar komið er niður. Fjármál borgarinnar, húsnæðismálin, samgöngumálin, leikskólamálin o.s.frv. Allt er þetta meira eða minna í ólestri. Það er í raun alveg furðulegt hversu illa hefur tekizt að halda á málum.

Tökum aðeins eitt dæmi af fjölmörgum. Alltof mörgum. Stefna Samfylkingarinnar og þeirra meirihluta sem flokkurinn hefur farið fyrir um þéttingu byggðar, sem aldrei gat annað nema litlum hluta eftirspurnar eftir húsnæði í borginni, hefur átt mjög stóran þátt í því vegna vægis hennar að keyra upp verðbólguna á undanförnum árum í gegnum snarhækkað fasteignaverð sem Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og nú þingmaður Samfylkingarinnar, vill kenna krónunni um til þess að reyna að koma okkur inn í Evrópusambandið. Krónan úthlutar hins vegar ekki byggingalóðum. En það hefði Samfylkingin og samstarfsflokkar hennar getað gert á liðnum árum en gerðu ekki nema aðeins að sáralitlu leyti.

Tímabært er að breyta þessu og svo mörgu öðru. Deginum ljósara er að það verður ekki gert ef Samfylkingin fer áfram með stjórn borgarinnar þó lofað sé að halda öðruvísi á málum núna rétt eins og fyrir fyrri kosningar. Flokkurinn hefur fengið yfirdrifin tækifæri til þess. Ég vil að lokum ítreka hvatningu mína til fólks um að nýta kosningaréttinn. Ég mun sem fyrr segir kjósa Sjálfstæðisflokkinn og vona að sem flestir komist að sömu niðurstöðu. Gleðilegan kjördag!

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)