Fleiri Norðmenn eru sem fyrr andvígir inngöngu Noregs í Evrópusambandsins en hlynntir samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar fyrirtækisins Sentio fyrir norska dagblaðið Dagsavisen eða 49% á móti 35%. Sé aðeins miðað við þá sem taka afstöðu með eða á móti eru rúm 58% andvíg því að ganga í sambandið en tæp 42% því hlynnt.
Fleiri hafa verið andvígir inngöngu Noregs í Evrópusambandið í öllum skoðanakönnunum sem birtar hafa verið þar í landi frá því snemma árs 2005 eða í 21 ár samfellt. Þingsályktunartillögu um að norska ríkisstjórnin hæfi skoðun á mögulegri inngöngu landsins í sambandið var felld með miklum meirihluta atkvæða í Stórþinginu fyrr á þessu ári.
„Við þurfum nú að beina orkunni að því að standa vörð um norska hagsmuni. Ekki að eyða henni í langt, krefjandi umsóknarferli sem hætta er á að sundri okkur,“ sagði Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, í ræðu fyrir rúmu ári síðan. „Við erfiðar aðstæður vil ég frekar halda Noregi sameinuðum en setja af stað ný átök með eða á móti.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)

