Hafa lofað ESB að dagsetningin haldist

Komið hefur betur í ljós að undanförnu hversu náið samráð ríkisstjórnin hefur haft við Evrópusambandið um skipulagningu fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis í lok sumars. Meðal annars varðandi orðalag spurningarinnar auk þess sem ráðamenn sambandsins hafa fengið meiri upplýsingar um málið og fyrr en bæði Alþingi og þjóðin. Til stendur að breyta spurningunni í meðförum Alþingis vegna gagnrýni landskjörstjórnar og Feneyjanefndar Evrópuráðsins en hins vegar heldur ríkisstjórnin sig fast við dagsetninguna 29. ágúst þrátt fyrir að hún hafi að sama skapi verið gagnrýnd harðlega.

Fyrir því er einkum sú ástæða að forystumenn ríkisstjórnarinnar vita að tíminn vinnur ekki með þeim enda fer andstaða við bæði inngöngu í Evrópusambandið og „aðildarviðræður“ vaxandi samkvæmt skoðanakönnunum. Hin skýringin er sú að ríkisstjórnin hefur lofað ráðamönnum sambandsins að þjóðaratkvæðið fari fram á tilsettum tíma. Þess vegna var málið keyrt út úr utanríkismálanefnd Alþingis í gær í ágreiningi þrátt fyrir að margt væri óafgreitt. Eins og gögn vegna umsóknarferlisins síðast sem ríkisstjórin aflétti trúnaði af á föstudagskvöldið og ekki hefur hægt að ræða í nefndinni.

Til þess að þjóðatkvæðið fari fram 29. ágúst eins og að er stefnt þarf að afgreiða þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um málið í síðasta lagi 29. maí. Eftir um tíu daga. Önnur umræða um tillöguna á eftir að fara fram sem eðlilega mun þurfa að taka sinn tíma. Þá hefur umræða um það hvort þjóðaratkvæðinu verði mögulega frestað aukizt í kjölfar niðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna sem ríkisstjórnarflokkarnir riðu ekki feitum hesti frá. Hafa ýmsir álitsgjafar haft á orði að niðurstaðan gæti verið vísbending um það hvernig þjóðaratkvæðið kunni að fara.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir forsærisráðherra, Ursula von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)