Haustið 2009 ákváðu ráðamenn í Kína einhliða að setja fríverzlunarviðræður við Ísland sem þá voru í gangi á ís. Ástæðan var einkum sú að íslenzk stjórnvöld höfðu sumarið áður sent inn umsókn um inngöngu í Evrópusambandið. Viðræðurnar lágu í kjölfarið niðri fram á árið 2012 þegar þær hófust á ný eftir að þáverandi utanríkisráðherra Íslands, Össur Skarphéðinsson, hafði upplýst kínverska ráðamenn um það undir rós að ekkert yrði af inngöngunni í sambandið.
Kæmi til inngöngu Íslands í Evrópusambandið yrði landið hluti af sameiginlegri viðskiptastefnu sambandsins og tollabandalagi þess sem þýddi að við hefðum ekki lengur frelsi til þess að semja um viðskiptasamninga við önnur ríki. Það vald færi til Evrópusambandsins ásamt valdinu yfir flestum öðrum málum okkar. Þar með myndu allir slíkir samningar sem Ísland hefur gert falla ur gildi sem er ástæða þess að Kínverjar voru ekki reiðubúnir að halda viðræðunum áfram.
Til að mynda segir þannig í svonefndum viðræðuramma Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands um inngöngu í sambandið á sínum tíma: „Réttindi og skyldur sem leiða af þessu [inngöngu í Evrópusambandið] og sem Ísland verður að virða að fullu sem aðildarríki, fela í sér að allir tvíhliða samningar á milli Íslands og sambandsins, sem og allir aðrir alþjóðasamningar sem Ísland hefur gert og eru ósamrýmanlegir skuldbindingum aðildar, verða felldir úr gildi.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
