Tekur ESB þá upp svissneska frankann?

„Vaxtamunur eru ekki rök fyrir því að skipta eigi um gjaldmiðil,“ ritaði dr. Jón Helgi Egilsson hagfræðingur í athugasemd við færslu Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, á Facebook í dag þar sem Dagur gerði lága stýrivexti evrusvæðisins að umtalsefni í ljósi stýrivaxtahækkunar Seðlabankans og hvatti sem fyrr til upptöku evrunnar.

Hins vegar benti Jón Helgi á það að stýrivextir seðlabanka Evrópusambandsins væru 2,15% en 0% í Sviss. Með rökum Dags ætti sambandið væntanlega að taka upp svissneska frankann. Vaxtamunur væri þó sem fyrr segir ekki ástæða til þess. „Hann endurspeglar m.a. verðbólgu, þenslu, hagvöxt, framleiðni, húsnæðismarkað, ríkisfjármál og trúverðugleika.“

Talandi um trúverðugleika sagði Jón Helgi að Dagur og stjórnvöld væru flesta daga að grafa undan trúverðugleika sínum með slíkum í bezta falli hálfsannleika. Sjálfur blandaði ég mér einnig í umræðuna og benti á það að helzta ástæða verðbólgunnar hér á landi undanfarin ár hefði verið snarhækkað fasteignaverð einkum vegna mikils skorts á íbúðarhúsnæði.

„Þar hefur Reykjavík vegið þyngst í krafti stærðar sinnar og ákvarðana meirihlutans í borginni á liðnum árum, lengst af undir þinni stjórn Dagur, um að úthluta engan veginn nógu mörgum byggingalóðum nema til þéttingar sem aldrei gat staðið undir nema hluta af þörfinni. Það er þægilegt að reyna að kenna krónunni um en hún úthlutar hins vegar ekki lóðum.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)