Til stóð að skýrsla handvalinna erlendra sérfræðinga, sem unnin var um krónuna fyrir fjármálaráðuneytið, yrði birt í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna svo hún nýttist meðal annars í síðari umræðu á Alþingi um þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um fyrirhugað þjóðaratkvæði um Evrópusambandið sem stendur yfir þessa dagana. Heimildir herma hins vegar að því hafi verið frestað. Aðallega vegna þess að skýrslan hafi ekki reynzt sá mikli áfellisdómur yfir krónunni sem vonazt hafði verið eftir af stjórnvöldum. Fyrir vikið hafi samskipti átt sér stað á milli fjármálaráðuneytisins og sérfræðinganna að undanförnu um það hvernig bæta mætti úr þeim ágalla hennar.
Til stóð upphaflega að birta ekki skýrsluna fyrr en skömmu fyrir þjóðaratkvæðið með það fyrir augum að lágmarka mögulega umræðu um hana og að hægtyrði að fara ofan í saumana á henni tímanlega áður en greidd yrðu atkvæði. Vegna þess hve Evrópusambandssinnar hafa farið halloka í umræðunni til þessa var hins vegar ákveðið að flýta birtingu hennar í von um að það yrði til þess að bæta erfiða vígstöðu þeirra. Nú hefur hins vegar komið babb í bátinn í þeim efnum sem fyrr segir. Fyrir vikið má ljóst vera að skýrslan verði ekki birt af fjármálaráðuneytinu nema fallizt verði á það af hálfu sérfræðinganna að gera breytingar á henni með þeim hætti að það henti betur pólitískri afstöðu stjórnvalda til málsins.
Við gerð skýrslunnar funduðu sérfræðingarnir með ýmsum hagsmunaaðilum hér á landi og vakti athygli í þeim heimsóknum að sérfræðingarnir virtust með ákveðnar fyrirframgefnar hugmyndir varðandi viðfangsefnið og vera einkum á höttunum eftir upplýsingum sem styddu þær. Það er að segja neikvæðar í garð krónunnar. Spurningar sérfræðinganna þóttu í þeim anda og eins viðbrögð þeirra við því þegar veittar voru upplýsingar sem voru jákvæðar í garð krónunnar. Virtist það koma á óvart. Telja verður líklegt að umræddar hugmyndir hafi ekki sízt verið komnar frá hérlendum ráðamönnum. Verði skýrslan að lokum birt er fyrir vikið viðbúið að hún verði meira eða minna lituð af pólitískri afstöðu stjórnvalda.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)

