Mikill meirihluti vill Evrópusambandsher

Mikill stuðningur er á meðal íbúa ríkja Evrópusambandsins við það að sambandið komi sér endanlega upp eigin her samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem gerð var fyrir fréttavefinn Politico um miðjan marz. Samkvæmt könnuninni, sem náði til 6.698 manns í Þýzkalandi, Frakklandi, Póllandi, Belgíu, á Spáni og á Ítalíu, sögðust 69% hlynnt slíkum her.

Fram kemur á fréttavef Politico að stuðningurinn hafi verið mestur í Belgíu, eða 83%, en minnstur í Frakklandi, 60%. Í öllum ríkjunum var með öðrum orðum afgerandi meirihluti. Tekin hafa verið ýmis skref á liðnum árum í átt að Evrópusambandsher. Til að mynda hefur Evrópusambandið á að skipa eigin herráði og hraðsveitum sem starfa undir merkjum þess.

Hrein leitun hefur verið að forystumönnum innan Evrópusambandsins á undanförnum árum sem ekki hafa lýst yfir stuðningi við það að sambandið komi sér endanlega upp eigin her. Þá kallaði Andrius Kubilius, varnarmálaráðherra Evrópusambandsins, eftir því á öryggismálaráðstefnu í Svíþjóð í janúar að sambandið kæmi sér upp 100 þúsund manna fastaher.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Hermenn undir merkjum Evrópusambandsins með fána þess. Eigandi: Þing Evrópusambandsins)