„Kostnaður af krónu líklega meiri en ábatinn,“ segir í fyrirsögn fréttatilkynningar fjármálaráðuneytisins um skýrslu fimm erlendra sérfræðinga sem ráðuneytið fékk til þess að vinna skýrslu um krónuna. Athygli vekur að ráðuneytið undir forystu Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra Viðreisnar, hafi ekki treyst sér til þess að taka dýpra í árinni en að kostnaðurinn væri líklega meiri en ávinningurinn. Fyrir lá enda, eins og fjallað var um á dögunum á Stjórnmálin.is, að skýrslan hafi verið vonbrigði fyrir ráðherrann þrátt fyrir að um pantaða skýrslu væri að ræða um viðfangsefnið.
Margt er til marks um vonbrigði Daða og stjórnvalda. Skýrslan er gerð opinber síðdegis á föstudag sem er þekktur tími til þess að tryggja að efni fái sem minnsta umfjöllun. Sem sagt rétt fyrir helgi þegar dagvinnuvöktum fjölmiðla er að ljúka og fámennari kvöldvaktir taka allajafna við. Þegar gera má ráð fyrir minni áhuga á málinu hjá almenningi þar sem helgi er framundan og þar sem ný mál verða líklega komin í kastljósið á mánudegi. Enginn blaðamannafundur var haldinn vegna úgáfu skýrslunnar eins og ríkisstjórnin hefur verið iðin við að boða til af minnsta tilefni hafi hún talið það hagfellt sér.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa ekki minnzt á skýrsluna fyrir utan Daða sem fjölmiðlar höfðu samband við af fyrra bragði vegna málsins. Þar var ráðherrann ekki með neinar miklar yfirlýsingar þó hann hafi greinilega reynt að túlka efni skýrslunnar eins hagfellt stjórnvöldum og hann mögulega gat. Það var engu að síður ósköp þunnur þrettándi. Daði hefur hins vegar ekki sagt orð um skýrsluna á Facebook-síðu sinni og ekki heldur Evrópuhreyfingin. Sama á við um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem ekki þarf að efast um að væri búin að því teldi hún vera tilefni til þess.
Harðir Evrópusambandssinnar, með Þorgerði í broddi fylkingar, hafa margítrekað fullyrt að kostnaðurinn af krónunni væri gríðarlegur. Pöntuð skýrsla frá handvöldum erlendum sérfræðingum staðfestir það hins vegar engan veginn. Ekki er gengið lengra í þeim efnum en að líklega sé kostnaðurinn meiri en ábatinn af henni. Þó er ekki nóg með að skýrslan hafi verið pöntuð og sérfræðingarnir handvaldir heldur gerði fjármálaráðuneytið alls kyns athugasemdir við drögin til þess að reyna að gera hana pólitískt hagstæðari fyrir ríkisstjórnina. Tekið var mið af því en samt er skýrslan vonbrigði.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Valdis Dombrovskis, efnahagsráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)

