Var einfaldlega farið með rangt mál

Fram kom í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins fyrir helgi, um skýrslu sem fjórir erlendir sérfræðingar unnu fyrir það um peningamál Íslands, að niðurstöður hennar væru þær að kostnaður af krónunni væri líklega meiri en ábatinn af henni. Viðreisn, flokkur Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra gekk síðan enn lengra á samfélagsmiðlum og fullyrti að kostnaðurinn væri meiri en ábatinn. Hins vegar er hvergi að finna slíkt heildarmat á kostnaði við krónuna í skýrslunni.

„Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli,“ sagði þannig í fréttatilkynningunni. „Þá virðist kostnaðurinn af krónunni vera töluvert meiri en ábatinn,“ var haft eftir Daða í tilkynningunni. Hins vegar benti Jón Helgi Egilsson hagfræðingur meðal annars á það í aðsendri grein í Morgunblaðinu á mánudaginn að ekkert slíkt kostnaðarmat væri að finna í skýrslunni.

Hið sama kom síðan fram í máli Arnaldar Sölva Kristjánssonar, lektors í hagfræði, í samtali við Ríkisútvarpið í gær þar sem hann sgaði skýrsluna að ýmsu leyti gagnlega en að hann tæki hins vegar undir það að í henni væri „ekki lagt heildstætt mat á hvort kostnaðurinn af krónunni sé líklega meiri en ábatinn.“ Það mat er þannig komið frá ráðuneytinu og á sér ekki stoð í skýrslunni þrátt fyrir fullyrðingu um annað í fréttatilkynningu þess. Með því var einfaldlega farið með rangt mál.

Harðir Evrópusambandssinnar hafa lengi haldið því fram, og ekki sízt að undanförnu, að krónan kostaði Ísland háar fjárhæðir og hundruð milljarða króna verið nefnd í því sambandi. Hins vegar staðfestir ekki einu sinni pöntuð skýrsla að sú sé raunin. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að umræddir einstaklingar hafi áfram haldið því sama fram síðan hún kom út. Til dæmis fjórir stjórnarþingmenn í umræðum um störf þingsins í fyrradag. Án þess þó að minnast orði á skýrsluna.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)