Komi til þess að Flokki fólksins verði ekki úthlutað ríkisstyrkjum til stjórnmálasamtaka í lok janúar felur það eðli málsins samkvæmt í sér opinbera staðfestingu á því að flokkurinn hefði aldrei átt að fá slíka styrki. Morgunblaðið greindi frá því í dag að Flokkur fólksins hafi þegið samanlagt 240 milljónir króna í slíka styrki án þess að uppfylla skilyrði laga um að vera skráður stjórnmálasamtök. Haft er eftir Ingu Sæland, formanni flokksins, á mbl.is að fénu verði ekki skilað.
Meðal annars er rætt við Guðmund Björgvin Helgason ríkisendurskoðanda sem staðfestir þetta. Flokkur fólksins sé einungis skráður sem félagasamtök og eigi sem slíkur ekki rétt á ríkisstyrkjum til stjórnmálaflokka. Ekki sé um einsdæmi að ræða en einnig hafi Vinstri grænir ekki uppfyllt umrætt skilyrði áður en gerð var athugasemd við það og það lagað. Inga hefur staðfest í fjölmiðlum að flokkurinn hafi verið meðvitaður um þetta en samt tekið við fénu frá skattgreiðendum.
Fram kemur í frétt Vísis að óljóst sé hvort Flokkur fólksins fái greiddan styrk til stjórnmálasamtaka síðar í vikunni og haft eftir Ingu að hún reikni ekki með því. Til standi að halda landsfund flokksins í febrúar og breyta samþykktum hans í þessum efnum. Slíkur fundur með hefðbundnu sniði hefur ekki farið fram innan flokksins síðan í september 2018 en samkvæmt samþykkum hans ber að gera það að jafnaði þriðja hvert ár. Formannskjör hefur að sama skapi ekki farið fram síðan.
Talsverð umræða hefur eðlilega skapast um málið í dag. Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, bendir á það á Facebook-síðu sinni að aðrir sem fái ofgreitt frá ríkinu þurfi að endurgreiða það, þar á meðal aldraðir, öryrkjar, barnafjölskyldur og ríkisstarfsmenn svo einhverjir séu nefndir. Spyr hann hvort eitthvað annað eigi að gilda um félagasamtök. „Þegar formaður félagasamtaka tekur við fjármunum vitandi að samtökin eiga ekki rétt á þeim, hvað kallast það?“
Minnt er á það á vefsíðu Björns Bjarnarsonar, fyrrverandi dómsmálaraðherra, að Inga og Flokkur fólksins hafi haft hvað hæst í gegnum tíðina um meinta spillingu annarra. „Sagan sýnir að í hópi þeirra sem hrópa hæst og af mestri vandlætingu um spillingu annarra eru menn, jafnvel þingmenn og fjölmiðlamenn, sem hneigjast til þess í því skyni að beina athygli frá spillingu í eigin ranni.“ Viðbúið er að annað hljóð hefði heyrzt frá Flokki fólksins hefðu aðrir átt í hlut en hann sjálfur.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Íslenzkir peningar. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
