Fleiri eru andvígir inngöngu í Evrópusambandið en hlynntir samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar Gallups fyrir Viðskiptablaðið sem birt var í gær eða 46% andvíg og 39% hlynnt. Af þeim sem eru andvígir er mikill meirihluti, eða 29%, alfarið andvígir því að ganga í sambandið en hin 17% annað hvort mjög andvíg eða frekar andvíg. Á sama tíma eru einungis um 14% alfarið hlynnt inngöngu í Evrópusambandið og hliðstætt margir annað hvort mjög eða frekar hlynntir.
Hins vegar hafa ófáar skoðanakannanir verð gerðar á undanförnum vikum um Evrópumálin án þess að vera birtar. Hafa spurningarnar bent til þess að kaupendur hafi verið stuðningsmenn inngöngu í Evrópusambandið. Til dæmis þessi sem var í gangi í lok maí: „Ef haldin verður atkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB, myndir þú greiða atkvæði með eða á móti?“ Valkostirnir voru: „Á móti upptöku viðræðna við ESB“ og „Með upptöku viðræðna við ESB“.
Telja verður afar ólíklegt að andstæðingar inngöngu í Evrópusambandið hafi keypt slíka skoðanakönnun. Þá hafa kannanir, þar sem spurt hefur verið um aðildarviðræður, ekki verð stuðningsmönnum inngöngu í sambandið hagfelldar. Frekar en kannanir um afstöðuna til inngöngu. Vitanlega er kaupendum kannana frjálst að birta ekki niðurstöður þeirra. Sé það hins vegar ekki gert bendir það ekki beinlínis til þess að niðurstöðurnar hafi ekki verið þær sem þeir hafi vonazt eftir.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þjóðfáni Íslands. Eigandi: Dickelbers – Attribution 4.0 International)

