Formaður utanríkismálanefndar Alþingis og þingmaður Viðreisnar, Pawel Bartoszek, hefur að undanförnu birt myndskeið á samfélagsmiðlum þar sem hann hefur farið að verzla í matinn og lýsir því síðan yfir að innkaupin hefðu verið 25% ódýrara ef Ísland væri í Evrópusambandinu. Vísar hann þar til greinargerðar Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands fyrir nefndina fyrr á árinu. Pawel minnist hins vegar ekki á annað sem kemur fram í greinargerðinni í þeim efnum.
Fyrir það fyrsta kemur fram í greinargerð Hagfræðistofnunar að ekki sé „ljóst hvað sameiginlegur gjaldmiðill mundi hafa mikil áhrif á vöruverð“ hér á landi. Fyrir vikið er ekkert fullyrt um það að hérlent matvælaverð myndi lækka um 25% kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið. Fram kemur aðeins að sú lækkun hafi orðið í Svíþjóð og Finnlandi á fyrstu tíu árunum eftir að löndin gengu í sambandið og að „freistandi“ sé að draga þá ályktun að tenging sé þar á milli.
„Vel er hugsanlegt að íslenzkir neytendur greiði mismuninn að miklu leyti á annan hátt, til dæmis með skattgreiðslum, sem standa mundu undir sérstökum stuðningi við íslenzkan landbúnað, umfram það sem ríkið veitir bændum núna,“ segir enn fremur með skírskotun í svokallaðan heimskautalandbúnað sem heimilar Svíum og Finnum að greiða viðbótarstyrki til þarlendra bænda norðan 62. gráðu norðlægrar breiddar ofan á styrki Evrópusambandsins.
Minnst er síðan á það að með inngöngu í Evrópusambandið færi Ísland inn fyrir tollamúra sambandsins sem þýddi að tollar kæmu á margar innfluttar vörur frá ríkjum utan þess sem ekki bera toll hér á landi. Þá myndu fríverzlunarsamningar Íslands, til dæmis við Kína, falla niður. „Með Evrópusambandsaðild koma ytri tollar þess í stað þeirra kjara sem samið hefur verið um í þessum samningum og má gera ráð fyrir að verð hækki á sumum vörum við breytinguna.“
Síðan kemur rúsínan í pysluendanum: „Athuganir Evrópsku hagstofunnar og fleiri benda til þess að upptaka evru hafi ekki haft mikil áhrif á meðaltalsverðlag. En vísbendingar eru um að verð á einstökum vörum eigi til að hækka þegar skipt er yfir í evru og að verð á ódýrum vörum hækki meira en á dýrum.“ Einmitt. Á heildina litið hefur innganga í Evrópusambandið og upptaka evru sem sagt ekki haft mikil áhrif á verðlag. Frá þessu var Pawel hins vegar ekkert að segja okkur.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)

