„Fyrir hönd Bandaríkjanna óska ég íslenzku þjóðinni til hamingju með 82. þjóðhátíðardaginn ykkar,“ segir í kveðju frá Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem birtist á þjóðhátíðardaginn í gær á vef bandaríska utanríkisráðuneytisins, þar sem hann áréttaði mikilvægi varnarsamningsins. „Í ár eru liðin 75 ár frá því að tvíhliða varnarsamningur okkar var gerður. Í þrjá aldarfjórðunga hefur þetta samstarf viðhaldið stöðugleika á Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum. Nú þegar Bandaríkin fagna 250 ára sjálfstæði sínu erum við sem fyrr skuldbundin gagnvart þessu sameiginlega öryggisbandalagi.“
„Fyrir utan varnarmálin er vaxandi efnahagslegt samstarf okkar meginstoð í samskiptum okkar. Íslenzk nýsköpun í orkumálum, gagnaverum, líftækni, sjávarútvegi og vaxandi sprotafyrirtækjaiðnaði knýr áfram viðskiptavöxt og viðskiptatækifæri sem koma báðum löndum okkar til góða,“ segir enn fremur. „Þessi árangur á viðskiptasviðinu er studdur öflugum menntatengslum og þeim þúsundum ferðamanna sem ferðast yfir Atlantshafið á hverju ári. Bandaríkin meta þetta samband mikils sem er styrkt af framúrskarandi gestrisni ykkar í garð Bandaríkjamönnum sem sækja ykkur heim,“ sagði hann áfram.
„Bandaríkin hlakka til að halda áfram þessu árangursríka samstarfi sem styður við öruggan og blómlega heimshluta. Ég óska öllum Íslendingum friðsamlegrar og ánægjulegrar hátíðar,“ segir að lokum í kveðjunni. Birtar eru slíkar kveðjur á vef utanríkisráðuneytisins á þjóðhátíðardögum allra ríkja heimsins og kveðjan sem slík því ekki fréttaefni. Það sem máli skiptir er innihaldið. Kveðjurnar eru þannig með ýmsum hætti en efni þeirra taka mið af því sem þykir skipta máli hverju sinni. Í kveðju Rubios á síðasta ári var ekki minnzt á varnarsamninginn. Áherzlan á hann nú felur í sér skýr skilaboð.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Eigandi: Gage Skidmore – Attribution 2.0 Generic)

