Hagsmunum stóru útgerðanna hér á landi yrði betur borgið ef Ísland gengi í Evrópusambandið. Þetta kom fram í frétt Ríkisútvarpsins 28. april þar sem fjallað var um greiningu ráðgjafafyrirtækisins Arctica Finance. Samkvæmt henni myndi virði einkum stærstu útgerðanna aukast verulega þegar ekki væri lengur hægt að takmarka erlent eignarhald á þeim.
„Ráðgjafafyrirtækið Arctica Finance telur að áhrif aðildar að Evrópusambandinu yrðu jákvæð fyrir stór íslenzk sjávarútvegsfyrirtæki, jafnvel þótt engar undanþágur fengjust frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnu sambandsins,“ sagði þannig áfram í umfjöllun Ríkisútvarpsins en um var að ræða greiningu sem fyrirtækið hafði sent til viðskiptavina sinna.
Fram kemur í greiningunni að við inngöngu í Evrópusambandið myndu allir innan þess „hafa rétt á að kaupa íslenzkar útgerðir og kvóta, hvort sem það eru rekstrarfélög eða sjóðir.“ Að mati ráðgjafafyrirtækisins er talið nánast öruggt að áhugi yrði á að kaupa íslenzkar útgerðir. Mikil samþjöppun hefði verið innan sambandsins og stór félög keypt kvóta þvert á ríki.
„Gjöful mið okkar yrðu augljóslega eftirsótt,“ segir enn fremur í greiningunni og að líklegt sé að fjárhagslegt virði kvóta hér á landi myndi „aukast verulega“ við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Fyrir vikið má ljóst vera að þeir sem tala fyrir inngöngu Íslands í sambandið séu miklu fremur að ganga erinda stórútgerðarinnar en hinir sem vilja vera áfram utan þess.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Íslenzkir peningar. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

