Furðuleg skilaboð berast þessa dagana frá þeim sem vilja að sagt verði já við því að hefja inngöngu í Evrópusambandið í kjölfar þjóðaratkvæðisins í lok sumars. Þau eru á þá leið að í raun hafi þjóðin ekkert annað val í atkvæðagreiðslunni. Það sé aðeins einn valkostur í boði. Kjósi fólk annað samkvæmt eigin sannfæringu sé það ólýðræðislegt. En hversu lýðræðislegt er það?
Margir í þeim hópi hafa talað á þessum nótum. Nú síðast Halldór Jörgen Olesen í grein á Vísi fyrir helgi. Þar gagnrýndi hann Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta lýðveldisins, fyrir að ætla á mánudaginn að tala á stofnfundi samtakanna Áfram Ísland sem ætla að beita sér fyrir því að sagt verði nei við því að hefja inngöngu í Evrópusambandið. Hinum valkostinum.
Halldór sagði Ólaf Ragnar hafa treyst þjóðinni til þess að kjósa um Icesave-samningana en treysti henni ekki lengur. Hvergi hefur þó komið fram að Ólafur sé andvígur þjóðaratkvæðinu sem slíku þó hann styðji annan valkostinn. Þann sem hugnast Halldóri ekki. Ef einhver treystir ekki þjóðinni er það Halldór sem greinilega vill ekki að hún hafi neitt val í lok sumars.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

