Klofningurinn er hinum megin

Fyrir helgi var tilkynnt um það að til stæði að stofna regnhlífarsamtökin Áfram Ísland fyrir bæði önnur samtök og einstaklinga sem eru andvíg því að samþykkt verði að hefja inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðinu í lok ágúst. Undirbúningur fyrir stofnun samtakanna hefur staðið yfir undanfarna mánuði. Viðbrögð DV voru þau að halda því fram að um væri að ræða klofning út úr Heimssýn, hreyfingu sjálfstæðissinna í Evrópumálum. Því fer þó fjarri enda er verkefnið í góðri sátt og samstarfi við þá ágætu hreyfingu. Vandséð er hvernig hægt er að kljúfa Heimssýn við þær aðstæður.

Hins vegar datt DV vitanlega ekki í hug að halda því fram að verið væri að kljúfa Evrópuhreyfinguna á dögunum þegar samtökin SJÁ voru stofnuð. Fram að því hafði þó Evrópuhreyfingin verið einu samtök Evrópusambandssinna hér á landi fyrir utan Unga Evrópusinna. Þá hefur SJÁ nákvæmlega sama yfirlýsta markmið og Evrópuhreyfingin. Að fá samning á borðið eins og það er orðað. Hvers vegna þurfti þá ný samtök um sömu markmið? Ástæðan er bæði óánægja með framgöngu Evrópuhreyfingarinnar og forystu hennar og að öllum er ljóst að um samtök Evrópusambandssinna er að ræða.

Fyrir vikið var talin þörf á því að stofna ný samtök til þess að reyna að telja fólki trú um að ekki væri fyrir að fara félagsskap Evrópusambandssinna heldur einungis fólks sem hefði ekki gert upp hug sinn. Hins vegar eru forsvarsmenn SJÁ engu að síður þekktir stuðningsmenn inngöngu í Evrópusambandið. Þetta tengist þeim rauða þræði í málflutningi Evrópusambandssinna að þjóðaratkvæðið snúist alls ekki um sambandið. Sem er auðvitað merkilegt þar sem innganga í það er vitanlega hið eiginlega markmið. Frétt DV var ætlað að fela það hvar hinn raunverulegi klofningur hefði orðið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Húsakynni ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: almathias)