Vill sem fyrr ekki mæta Guðlaugi Þór

Til stóð að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, myndi mæta Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, í kappræðum 14. ágúst til þess að ræða þjóðaratkvæðið um Evrópusambandið. Viðræður stóðu yfir en síðan bárust þau skilaboð að Þorgerður gæti ekki mætt vegna sumarfundar ríkisstjórnarinnar 12. og 13. ágúst á Höfn. Henni var einnig boðið að velja dagsetningu sjálf en hafnaði því líka. Líklega mun Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, mæta í hennar stað.

„Mér finnst þetta skrítið og óeðlilegt að hún ætli bara ekki að taka umræður við pólitíska andstæðinga sína, hvorki um þetta né annað,“ sagði Guðlaugur Þór í samtali við Vísi. „Þorgerður víkur sér undan því að taka þátt í rökræðum sem ráðherra verður auðvitað að gera í lýðræðislegu þjóðfélagi. Hún hefur vikið sér undan þessu ítrekað.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Þorgerður kemur sér undan því að taka umræðuna við pólitíska andstæðinga. Til stóð að þau Guðlaugur mættust á Sprengisandi í maí en Þorgerður afboðaði sig með nær engum fyrirvara. Hann hafði þá ekið langa leið til þess að mæta henni.

„Síðast þegar ég átti að mæta henni keyrði ég þrjú hundruð kílómetra, á Sprengisandi, og fékk svo þau skilaboð um morguninn að hún kæmist ekki. Það er ekki eðlilegt í lýðræðislegu þjóðfélagi að ráðherrar víki sér stöðugt undan því að ræða þau mál sem þeir eiga að verja og leggja sjálfir fram. Í þeim löndum sem við miðum okkur við tíðkast þetta ekki, að ráðherrar víki sér undan rökræðum,“ sagði Guðlaugur enn fremur. Þá eins og nú stendur til var Pawel sendur til þess að fylla skarð Þorgerðar. „Það er augljóst að hún treystir sér ekki í þessar umræður og það segir allt sem segja þarf um stöðu málsins.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)