Dagsetning þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið er engin tilviljun heldur úthugsuð af ríkisstjórninni. Tveimur dögum fyrir atkvæðagreiðsluna, 27. ágúst, verður ágústmæling vísitölu neyzluverðs birt. Það er að segja verðbólgunnar. Þetta verður hins vegar engin venjuleg mæling heldur sú mæling sem möguleg uppsögn kjarasamninga miðast við.
Verði verðbólgan yfir 4,7% virkjast forsenduákvæði kjarasamninganna og hægt verður að segja þeim upp. Þann 19. ágúst er síðan næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans. Ríkisstjórnin bindur vonir sínar við það að verkalýðshreyfingin verði brjáluð vegna stöðunnar. Tilkynnt verði í kjölfarið um uppsögn samninganna rétt fyrir þjóðaratkvæðið.
Höfum í huga að ríkisstjórnin hefur nákvæmlega ekkert gert í sumar til þess að afstýra því að kjarasamningum verði sagt upp. Þvert á móti hefur til dæmis verið ákveðið að hækka komugjöld á heilsugæzlustöðvar um 100% sem fer beint út í verðbólguna. Verðbólgan mældist 5,3% í júlí. Hvers vegna er ríkisstjórnin ekkert að gera til að tækla stöðuna?
„Það sem gerist svo ítrekað með Evrópusambandið er þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga, þegar það eru háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í hlaðvarpinu Chess After Dark 27. ágúst 2024. Um þetta eru aðrir í ríkisstjórninni vitaskuld einnig vel meðvitaðir.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Eigandi: Skjáskot)
