Fékk ekki undanþágu í sjávarútvegsmálum

„Malta fær ekki undanþágu vegna kaflans um sjávarútveg en landið hafði óskað eftir undanþágu frá meginreglunni um jafnan aðgang allra skipa innan Evrópusambandsins að lögsögu sambandsins til þess að geta áfram stýrt verndarsvæði sínu sem nær 25 sjómílur út frá ströndinni.“ Á þessum orðum hefst frétt fréttasíðunnar EU Observer 11. marz 2002 þegar Maltverjar voru í umsóknarferli að Evrópusambandinu og vildu fá að halda áfram að stjórna fiskveiðum við strendur landsins.

„Vonir ríkisstjórnar Möltu stóðu til þess að hægt yrði að semja um 25 sjómílna verndarsvæði þar sem erlendum sjómönnum yrði óheimilt að veiða,“ segir enn fremur í fréttinni. Haft er eftir talsmanni þáverandi stækkunarráðherra Evrópusambandsins, Günters Verheugen, að sambandið hefði þegar upplýst maltnesk stjórnvöld um að slík undanþága væri ekki í boði. „Vilji Malta verða aðili að Evrópusambandinu verður landið að samþykkja bæði þau réttindi og þær skyldur sem fylgja því.“

Maltverjar fengu þess í stað einungis sérlausn sem felur einkum í sér almenna reglu um að tiltölulega lítil skip með takmarkaða vélarstærð megi veiða á maltneskum fiskimiðum í nafni verndarsjónarmiða. Skip frá öðrum ríkjum mega veiða þar en útgerðir í öðrum ríkjum innan Evrópusambandsins telja það einfaldlega ekki hagkvæmt að senda svo lítil skip til veiða við eyríkið. Þá breytir sérlausn Maltverja engu um það frekar en aðrar slíkar að valdið í þeim efnum er í höndum sambandsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Maltneskir sjómenn. Eigandi: Godwin Borg – Attribution 4.0 International)