Meirihluti Svía er andvígur því að skipta sænsku krónunni út fyrir evruna samkvæmt niðurstöðum nýjustu skoðanakönnunar hagstofu Svíþjóðar eða 52,1% á móti 28,7% sem vilja kasta krónunni. Fram kemur í frétt Reuters að andstaða við evruna hafi aukizt og stuðningur dregizt saman frá því á síðasta ári þegar 49,5% hafi verið andvíg henni en 32% hlynnt.
Fleiri Svíar hafa verið andvígir upptöku evrunnar en hlynntir samkvæmt öllum könnunum sænsku hagstofunnar undanfarin rúm 20 ár fyrir utan eina í lok árs 2009. Haustið 2003 var upptöku evrunnar hafnað í þjóðaratkvæði í Svíþjóð. Danir hafa að sama skapi hafnað evrunni í þjóðaratkvæði. Finnar eru eina Norðurlandþjóðin sem tekið hefur upp evruna.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Frá Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar. Eigandi: OleNeitzel – Attribution 4.0 International)
