„Herskylda sem liður í viðbúnaði ESB“

„Herskylda, sem áður var talin tilheyra fortíðinni, hefur á síðustu árum í vaxandi mæli færzt aftur á dagskrána í stefnumótun í Evrópu, hjá Evrópusambandinu og á alþjóðavettvangi, einkum í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu árið 2022. Samhliða frekari þróun varnarstefnu Evrópusambandsins, ásamt auknum kaupum á hergögnum og eflingu hergagnaiðnaðarins, hefur umræða um herafla sambandsins þróast í tengslum við sameiginlega öryggis- og varnarstefnu þess.“

Með þessum hætti hefst samantekt skýrslunnar „Herskylda sem liður í viðbúnaði Evrópusambandsins“ („Conscription as an element in European Union preparedness“) sem unnin var af rannsóknarþjónustu þings sambandsins og kom út 19. marz á síðasta ári. Þá segir að skoðanakannanir bendi til vaxandi stuðnings í ýmsum ríkjum sambandsins við herskyldu eða þegnskyldu og aukin áherzla sé á mikilvægi þess að ríkin séu undirbúin fyrir átök og um leið á herskyldu. Minnt er á að ýmis ríkjanna hafi þegar komið á herskyldu á síðustu árum eða hafi ekki lagt hana af eftir lok kalda stríðsins.

Fjölmargir forystumenn Evrópusambandsins hafa kallað eftir því að sambandið kæmi sér endanlega upp eigin her. Þar á meðal Ursula von der Leyen núverandi forsætisráðherra þess. Varnarmálaráðherra Evrópusambandsins, Andrius Kubilius, lýsti því yfir í byrjun þessa árs að sambandið þyrfti að koma sér upp hundrað þúsund manna fastaher en samkvæmt skoðanakönnun fyrr á þessu ári í nokkrum af helztu ríkjum þess voru á bilinu 60-83% hlynnt slíkum her.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Hermaður merktur fána Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union)