Semjum okkur ekki frá grunnreglum ESB

„Ég er ekki að halda því fram að Ísland geti samið sig undan grundvallarskilmálum ESB. Ég er að segja að við vitum ekki hvaða heildarniðurstöðu Ísland gæti náð í aðildarviðræðum fyrr en þær hafa farið fram,“ sagði Jónas Hagan, einn þriggja stofnenda samtakanna SJÁ, í opinni umræðu á Facebook 11. júní síðastliðinn. Til umræðu var Lissabon-sáttmáli Evrópusambandsins, grundvallarlöggjöf þess, og ákvæði hans um fullt vald sambandsins yfir líffræðilegum auðlindum sjávar.

Með öðrum orðum verða orð Jónasar ekki skilin á annan veg en þann að ásættanlegt sé að gefa eftir valdið yfir auðlindum Íslandsmiða ef eitthvað annað fæst í staðinn. Erfiðlega gekk þó að fá upp gefið af hans hálfu hvað það ætti að vera sem gæti mögulega réttlætt það. Þetta sjónarmið heyrist víða í röðum Evrópusambandssinna. Talað er gjarnan um svokallaðar sérlausnir sem eru ekki varanlegar undanþágur frá yfirstjórn sambandsins og breyta engu um að valdið fer til þess.

Hins vegar er auðvitað jákvætt að forystumenn þeirra sem vilja að samþykkt verði í þjóðaratkvæðinu í lok ágúst að hefja inngöngu í Evrópusambandið, með tilheyrandi fullri aðlögun að regluverki þess og stjórnsýslu eins og fram kemur í gögnum sambandsins, viðurkenni að við munum ekki semja okkur frá því að valdið yfir sjávarútveginum og flestum öðrum málum okkar fari til Brussel í samræmi við Lissabon-sáttmálann. Verra að þeir skuli ekkert telja athugavert við það.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)