„Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, kallaði eftir því að settur yrði á laggirnar sjálfstæður sameiginlegur Evrópuher. Slíkur her þyrfti að ganga mun lengra en það samstarf á milli þjóðaherja sem þegar ætti sér stað. Mun meiri umræðu þyrfti í þeim efnum en þetta skipti miklu máli fyrir uppbyggingu hernaðargetu sambandsins.“ Með þessum orðum fjallaði þýzka sjónvarpsstöðin WDR um ræðu von der Leyen á ráðstefnunni Europaforum 2023 6. júní það ár.
Fram kom enn fremur í máli von der Leyen að Atlantshafsbandalagið (NATO) væri ekki nóg. „NATO er ekki alls staðar,“ sagði hún þannig í ræðunni. Von der Leyen hefur lengi verið talsmaður þess að Evrópusambandið kæmi sér endanlega upp eigin her og hefur ítrekað kallað eftir því, bæði eftir að hún tók við embætti sínu hjá sambandinu og þegar hún gegndi embætti varnarmálaráðherra Þýzkalands. Þá hefur hún einnig verið hlynnt lokamarkmiðinu um evrópskt sambandsríki.
Von der Leyen er þó ekki eini forystumaður Evrópusambandsins og ríkja þess sem styður það að til verði að lokum Evrópusambandsher enda hafa ófáir í þeim hópi lýst yfir stuðningi við það í gegnum tíðina. Fyrr á árinu lýsti Andrius Kubilius, varnarmálaráðherra sambandsins, því yfir að það þyrfti að koma sér upp 100 þúsund manna fastaher. Þá hafa skoðanakannanir sýnt mikinn og útbreiddan stuðning við Evrópusambandsher á meðal almennings í ríkjum sambandsins.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Ursula von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union)
